Margrét Lára: Sýnir hvað fótbolti getur verið einfaldur og fallegur Óskar Ófeigur Jónsson í Vaxjö skrifar 18. júlí 2013 16:00 Margrét Lára Viðarsdóttir með dóttur landsliðsþjálfarans, Emblu Björg Sigurðardóttur. „
Ég er að komast niður á jörðina. Þetta var mikill draumur sem við vorum að upplifa í gær en við þurfum að koma okkur hratt niður á jörðina því að eru átta liða úrslitin sem bíða okkar. Við erum ekki í þessu til að vera með," segir Margrét Lára Viðarsdóttir á hóteli íslenska landsliðsins í dag. „Við ætlum að sjálfsögðu að fara í leikinn til að vinna og komast í fjögurra liða úrslit," sagði Margrét Lára en íslenska liðið tryggði sig inn í átta liða úrslitin á EM í Svíþjóð með því að vinna Holland 1-0 í gær. „Það er búin að vera mikil gagnrýni á liðið og eflaust hafði enginn trú á þessu. Við höfðum það og það sýnir það bara að þegar hópur fólks kemur saman sem stefnir í sömu átt með sömu markmið og hefur virkilega trú á verkefninu þá getur allt gerst. Ég held að við höfum sýnt það í gær," segir Margrét Lára. „Við komum rosalega flott inn í leikinn og fyrri hálfleikurinn var besti hálfleikurinn sem við höfum spilað, allavega á þessu móti. Seinni hálfleikurinn þróaðist svolítið út í það að við vorum að sparka boltanum fram og verjast. Það gekk upp í gær sem betur fer og okkur var ekki refsað fyrir það," segir Margrét Lára. „Við vorum þéttar til baka og spiluðum frábæra vörn. Það þarf ekki alltaf að vera fallegasti fótboltinn sem er árangursríkastur," sagði Margrét Lára. „Sigurmarkið var rosalega fallegt. Þetta var glæsilegt hlaup hjá Dagnýju og frábær fyrirgjöf frá Hallberu. Þetta sýnir kannski einfaldleika fótboltans og hvað fótbolti getur verið einfaldur og fallegur. Þetta var frábært mark og það var þvílíkur karakter og liðsheild sem skilaði okkur þessum sigri," sagði Margrét Lára.
Mest lesið Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Fótbolti Uppgjör: Njarðvík - Grindavík 83-72 | Njarðvíkingar sigldu í úrslitaeinvígið Körfubolti Mamma fór inn á völlinn og sparkaði í þrettán ára strák Sport Uppgjörið: ÍBV 23-25 Valur | Valskonur einum sigri frá Íslandsmeistaratitli Handbolti Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Grindvíkingar valda vonbrigðum og Stjarnan líklega án Seth LeDay Sport Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Fótbolti Fleiri fréttir Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Uppgjörið: Fram - Þróttur 0-3 | Þróttur áfram á sigurbraut en Fram ennþá án stiga Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Mögnuð tilþrif Stefáns á báðum endum og efsta deild markmiðið Lífið leikur við Lindu sem lofaði að svara á sænsku næst Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Segist hafa skipt um hótel til að spara Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Fylkir kláraði Vestra í seinni hálfleik Titillinn að renna úr greipum Elíasar? Lið Tómasar vann gífurlega mikilvægan sigur Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Barcelona getur tryggt sér titilinn gegn Real Madrid Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Reiddist og felldi son Robinho Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sagan segir að KR verði meistari Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti Sjá meira