Erlent

Aung San Suu Kyi endurkjörin

Aung San Suu Kyi
Aung San Suu Kyi
Aung San Suu Kyi hefur verið endurkjörin leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Lýðræðisfylkingarinnar í Mjanmar, áður Búrma.

Hún var kjörin einróma af miðstjórn flokksins á flokksþingi sem fer nú fram um helgina. Flokkurinn vann nokkur þingsæti í fyrra og horfir nú til kosninganna 2015.

Aung San Suu Kyi er 67 ára og var ein þeirra sem kjörin var á þingið í fyrra.

Áætlað er að Lýðræðisfylkingin hafi um eina komma tvær milljónir stuðningsmanna í Burma en herforingjastjórnin þar í landi hefur sett flokknum miklar skorður eftir kosningasigur 1990.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×