Ég hef beðið eftir kallinu Stefán Árni Pálsson skrifar 30. maí 2013 00:01 Heitur Gunnar Heiðar hefur einnig lagt upp fjögur mörk í fyrstu níu leikjum tímabilsins. Mynd/Brita Nordholm
Knattspyrnumaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður Norrköping, hefur heldur betur náð sér á strik á tímabilinu, en hann hefur skorað sex mörk í síðustu níu umferðum sænsku úrvalsdeildarinnar. „Þetta er það sem maður vill upplifa sem knattspyrnumaður, að spila fyrir landsliðið,“ sagði Gunnar Heiðar í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég er löngu kominn í gang og hef verið að bíða eftir kallinu. Síðasta tímabil var frábært fyrir mig persónulega og skoraði ég 17 mörk. Þetta tímabil byrjar enn betur og því kom það mér ekkert sérstaklega á óvart að vera valinn. Ég er búinn að æfa eins og skepna í allan vetur og það er greinilega að borga sig.“ Gunnar Heiðar lék síðast fyrir landsliðið í febrúar 2012 þegar liðið tapaði illa fyrir Japan í vináttuleik. „Það að vera ekki valinn hefur ekki farið neitt sérstaklega í taugarnar á mér, það eru aðrir menn sem ráða hverjir eru í landsliðshópnum, en ég tel mig fyllilega eiga heima þar. Það er kominn tími á endurkomu frá mér og vonandi fæ ég einhverjar mínútur til að sanna mig.“ Gunnar Heiðar hefur leikið 23 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim fimm mörk. Fyrsti leikurinn var gegn Ítalíu í mars 2005 en síðasta markið skoraði hann í sigri á Slóvakíu í mars 2008.
Fótbolti Mest lesið Undrandi á skrýtinni stöðu: „Þetta er bara ekki að virka“ Handbolti Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin Handbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Alfreð tekur á sig sökina: Gagnrýndur óbeint af leikmanni Handbolti Svona var stuðið fyrir leik í Kristianstad Handbolti Stærsta stund strákanna okkar Handbolti Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Enski boltinn Andri einn og yfirgefinn: „Held ég hafi sloppið“ Handbolti Stór mistök Alfreðs reyndust Þjóðverjum dýrkeypt Handbolti Fá martraðir um Tryggva eftir leik kvöldsins Körfubolti Fleiri fréttir Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Salah klúðraði vítaspyrnu er Nígería tók þriðja sætið Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Ísaki fórnað í langþráðum sigri Kölnar Birta hetja Genoa í frumrauninni Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Mbappé á skotskónum í fyrsta sigrinum undir stjórn Arbeloa Draumabyrjun hjá Carrick KR fær tvo unga Ganverja „Stoltur að fá þetta tækifæri og tek því ekki sem sjálfsögðum hlut“ Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Hákon horfði upp á tap er PSG tók toppsætið Líklegra að Vinícius Jr. framlengi við Real Madrid eftir brottför Xabi Alonso Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Gamla Íslendingafélagið gæti breytt aftur um nafn Breytingar hjá Breiðabliki Sjá meira