Andstæðingur Hesbollah lést í sprengjuárás Haraldur Guðmundsson skrifar 28. desember 2013 07:30 Sprengingin var öflug og nærliggjandi byggingar löskuðust. Fréttablaðið/AP.
Sex létust og yfir sjötíu særðust í bílsprengingu í miðborg Beirút, höfuðborgar Líbanons, í gær. Sprengjunni, sem vóg um sextíu kíló, var komið fyrir í bifreið Mohammeds Chatah, fyrrverandi fjármálaráðherra Líbanons og ráðgjafa Saad Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Chatah og bílstjóri hans létust báðir. Talið er að liðsmenn Hesbollah-samtakanna hafi komið sprengjunni fyrir. Chatah var harður andstæðingur samtakanna og gagnrýndi þau meðal annars á Twitter um klukkustund áður en hann lést. Þar sagði hann samtökin þrýsta á að fá aukin völd í varnarmála- og utanríkisstefnu Líbanon. Chatah var í gær á leiðinni á fund með Hariri og meðlimum líbanskrar hreyfingar sem hefur gagnrýnt stjórnvöld í Sýrlandi opinberlega. Chatah og Hariri voru einnig andstæðingar Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, en hann nýtur stuðnings Hesbollah. Réttarhöld yfir fimm liðsmönnum samtakanna eiga að hefjast eftir þrjár vikur, en þeir eru sakaðir um að hafa drepið Rafik Hariri, föður Saads, í sprengjutilræði í Beirút árið 2005. Chatah var súnní-múslimi líkt og Hariri. Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hefur aukið á spennuna milli súnnía og sjía-múslima í Líbanon. Liðsmenn Hesbollah, sem eru sjíar, hafa undanfarna mánuði gengið til liðs við stjórnarher Sýrlands en súnníar í Líbanon styðja uppreisnarmenn.
Mest lesið Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Sjá meira