Innlent

Íhuga skíðalyftu við Digraneskirkju

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Skoða á uppsetningu barnaskíðalyftu í brekkunni við Digraneskirkju.
Skoða á uppsetningu barnaskíðalyftu í brekkunni við Digraneskirkju. Fréttablaðið/GVA
Bæjaryfirvöld í Kópavogi skoða nú tillögu frá Arnþóri Sigurðssyni um að kanna möguleika á því að koma upp barnaskíðalyftu við brekkuna við Digraneskirkju.

Bæjarráð fól íþróttaráði að kanna möguleika á barnaskíðalyftu einhvers staðar í bænum. Íþróttaráð fól þá sínum starfsmönnum í samvinnu við umhverfissvið að koma með tillögur í málinu. Kveðst íþróttaráðið jafnframt fagna tilkomu gönguskíðabrautar í Fossvogsdal. Brautin er samvinnuverkefni bæjarins og Skíðafélagsins Ulls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×