Draumur fyrir framherja að spila í þessari deild Stefán Árni Pálsson skrifar 21. október 2013 07:00 Framherjinn Aron Jóhannsson er að finna taktinn hjá hollenska úrvalsdeildarliðinu AZ Alkmaar en leikmaðurinn skoraði tvö mörk með liðinu í gær. nordicphotos/getty
Aron Jóhannsson, leikmaður AZ Alkmaar, fór á kostum í hollensku úrvalsdeildinni í gær en leikmaðurinn skoraði tvö mörk og lagði annað upp í 3-1 sigri á Cambuur. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði AZ í leiknum en var tekinn af velli tíu mínútum fyrir leikslok. „Maður getur kannski ekki verið beint óánægður með tvö mörk, eina stoðsendingu og þrjú stig eftir leik,“ segir Aron Jóhannsson en hann gekk í raðir hollenska liðsins í janúar á þessu ári og samdi við félagið til ársins 2017, en hann var áður á mála hjá AGF í Danmörku. „Það hefur gengið þokkalega hjá mér í deildinni á tímabilinu en maður er ennþá nokkuð á eftir Alfreð [Finnbogasyni],“ segir Aron en Alfreð Finnbogason, leikmaður Heerenveen, hefur verið óstöðvandi í deildinni á þessu tímabili og skorað ellefu mörk.Gott að taka milliskrefið hér„Þessi dvöl mín hér í Hollandi hefur verið alveg frábær og mér líður gríðarlega vel hér hjá AZ. Hollenska deildin er að mínu mati besta deildin til að taka þetta milliskref áður en maður reynir fyrir sér á meðal þeirra allra bestu. Hér spila flestöll lið mikinn sóknarbolta og leggja leikinn upp með að spila boltanum mikið og í þeim aðstæðum nær maður að blómstra. Fyrir framherja er algjör draumur að vera í þessari deild.“ AZ Alkmaar er í áttunda sæti hollensku úrvalsdeildarinnar með 16 stig.Önnur lið sýndu áhuga „Það er gríðarlegur áhugi á fótboltanum hér í Hollandi og fullt á flestalla velli í hverri viku, sama hvort Ajax er að koma í heimsókn eða eitthvað annað minna lið. Ég er virkilega sáttur með þá ákvörðun mína að færa mig yfir til Hollands frá Danmörku. Ég hafði möguleika á því að fara í önnur stærri lið sem eru í betri deildum en ég vil fyrst og fremst spila. Það er ekkert alltaf best að vera með feitan tékka en sitja alla leiki á bekknum, þá bæta menn sig ekki mikið sem knattspyrnumenn. Það er betra þegar maður er ungur að taka þetta millistig og sætta sig kannski við lægri laun.“ Aron vill einbeita sér að hollensku deildinni í dag og tekur einn leik í einu hjá AZ Alkmaar en vissulega er draumurinn að spila síðar í ensku úrvalsdeildinni eða deild af þeirri stærðargráðu. En með hvaða liði heldur Aron í ensku deildinni? „Ég vil helst ekki svara því, það getur komið í bakið á manni síðar,“ segir Aron á léttum nótum. Aron Jóhannsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir bandaríska landsliðið gegn Panama í undankeppni HM síðastliðin þriðjudag en hann hefur leikið fjóra landsleiki fyrir Bandaríkin. Aron Jóhannsson hefur tvöfaldan ríkisborgararétt og valdi í sumar að leika fyrir Bandaríkin í stað þess að spila fyrir íslenska landsliðið. Bandaríkjamenn hafa tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem fram fer í Brasilíu næstkomandi sumar.
Fótbolti Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Sjá meira