Ætla að skemma fyrir Svíum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2013 08:00 Svíarnir áhugasamir Blaðamaður og ljósmyndari Expressen stillti þeim Margréti Láru Viðarsdóttur og Söru Björk Gunnarsdóttur upp með forsíðu blaðsins síns í gærmorgun. fréttablaðið/Daníel
Íslensku stelpurnar eru mættar á stóra sviðið í Halmstad þar sem þær mæta gestgjöfum Svía í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar á morgun. Stelpurnar fengu forsmekkinn af sirkusnum sem verður á Örjans Vall á morgun þegar þær hittu heilan hóp af sænskum blaðamönnum á hóteli íslenska liðsins í gær. Sænsku blaðamennirnir hópuðust sérstaklega í kringum þær Margréti Láru Viðarsdóttur og Söru Björk Gunnarsdóttur sem báðar spila stórt hlutverk hjá sínum liðum í Svíþjóð. „Svíarnir eru með einhverjar yfirlýsingar en það setur enn þá meiri pressu á þær. Við erum bara mjög spenntar að fara inn í þennan leik og skemma fyrir þeim,“ segir Sara Björk. Margrét Lára lék sér að því að svara sænsku blaðamönnunum á sænsku og skellti í nokkra brandara inn á milli, við mikla kátínu þeirra sænsku. „Maður verður að hafa svolítið gaman af þessu. Það þarf reyndar ekki mikið til að gleðja Svíana. Ef maður er óöruggur á sænskunni þá kemur það allt öfugt út. Maður verður bara að vera svolítið kokhraustur og láta vaða,“ segir Margrét Lára. Sænska pressan segir formsatriði fyrir Svía að komast í undanúrslitin. „Sænska pressan vill meina að þær þurfi varla að mæta til leiks en það má ekki gleyma því að þetta er meira pressan sem er að tala um þetta. Þetta kemur ekki frá leikmönnunum sjálfum eða þjálfurum Svíþjóðar. Ég reikna nú með því að þær taki okkur alvarlega,“ segir Margrét Lára. „Við erum ekki bara að fara að spila á móti ellefu sænskum píum heldur verða sjö þúsund manns sem styðja Svíana. Auðvitað verður þetta erfitt en við erum tilbúnar að halda áfram að vera jákvæðar og njóta augnabliksins. Við löbbum brosandi inn á völlinn og löbbum yfirleitt brosandi af velli líka. Við ætlum að halda því áfram,“ segir Margrét Lára. „Við erum sáttar en megum ekki vera of saddar. Við þurfum að koma með sama hugarfar og sama vilja eins og á móti Hollandi,“ segir Sara. Margrét Lára og Sara virkuðu afslappaðar þrátt fyrir ágang sænsku blaðamannanna. „Við höfum engu að tapa og förum óstressaðar inn í þennan leik. Við erum í frábærri stöðu til að gera einhver kraftaverk hérna,“ segir Margrét Lára. Leikurinn við Svía hefst á morgun klukkan 13.00 að íslenskum tíma.
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ítalía 39-26 | Afar öruggur sigur gegn óvenjulegu liði Handbolti Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ Handbolti Sjáðu gleðina hjá Íslendingum í Kristianstad Handbolti Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Íslenski boltinn Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin Handbolti Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands á EM Handbolti Stjörnuleikmaður fékk borgaðar tugi milljóna fyrir að spila illa Körfubolti Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Handbolti Óli Stef greindi frá fjarveru sonarins yfir lambalæri hjá Þrótturum Handbolti „Á eftir bolta kemur barn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Líklegra að Vinícius Jr. framlengi við Real Madrid eftir brottför Xabi Alonso Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Gamla Íslendingafélagið gæti breytt aftur um nafn Breytingar hjá Breiðabliki Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Albert fær liðsfélaga frá Leeds Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Í lífstíðarbann fyrir þessa óhuggulegu tæklingu Kenna Donald Trump og falli Bandaríkjadals um sjö milljarða tap „Á eftir bolta kemur barn“ Rúmlega hálfur milljarður manna sótti um miða á HM Börsungar sluppu fyrir horn Nökkvi og félagar féllu úr leik í bikarnum Stórleikur hjá Rabiot í mikilvægum sigri AC Milan Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Guðrún klæðist grænu á nýjan leik Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt KR í samstarf við akademíu í Gana Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Samuel Eto'o settur í bann fyrir slæma hegðun en sambandið kvartar Sláandi mynd af þjálfurum þriggja stærstu spænsku félaganna frá 2011 Sjáðu bæði mörk Viktors í gær Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins Heimamenn Marokkó í úrslitaleikinn eftir vítaspyrnukeppni „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Martraðarbyrjun hjá Arbeloa í Madríd Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Tómas Bent gulltryggði sigurinn Blysin slógu Bæjara ekki út af laginu Sjá meira