Þær meiðast alltaf sem eru með mér í herbergi Óskar Ófeigur Jónsson í Svíþjóð skrifar 19. júlí 2013 07:00 Guðni Kjartansson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, færði öllum leikmönnum og starfsmönnum landsliðsins rósir í gærmorgun eftir að liðið tryggði sér sæti í átta liða úrslitum eftir frækinn sigur á Hollendingum í fyrrakvöld. fréttablaðið/óskaró
Allir taka eftir því hversu frábær andi er í íslenska kvennalandsliðinu og hin mikla samheldni í liðinu á örugglega mikinn þátt í einstökum árangri stelpnanna á EM í Svíþjóð. Stelpurnar ná vel saman innan sem utan vallar og það sést langar leiðir. Fréttablaðið kannaði það hvaða leikmenn eru saman í herbergi í ferðinni. „Ég hef aldrei skipt mér af því hverjar eru saman í herbergi. Við erum með Möggu liðsstjóra (Margréti Ákadóttur) sem hefur séð um að raða leikmönnum saman. Það er þannig með margar að þær eiga góða vinkonu í liðinu og það eina sem ég sagði við Möggu var að þegar hún raðar leikmönnum saman í herbergi þá vil ég að leikmönnum líði vel saman. Þær eru mikið saman og þeim þarf að geta liðið vel þennan tíma. Það hefur alltaf verið þannig en svo er þessi hópur þannig að þetta eru allt góðar vinkonur sem hafa þekkst vel lengi. Þetta hefur aldrei verið neitt vandamál,“ segir landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson um reglurnar um herbergisskipan leikmanna liðsins.Þóra Björg ein í herbergi „Það eru 23 leikmenn og einhver þurfti að vera ein. Þeir spurðu mig og þar sem að ég er eiginlega aldrei inni á herbergi þá skiptir það mig ekki máli. Ég bý eiginlega hjá Svölu sjúkraþjálfara hvort sem er,“ sagði Þóra Björg Helgadóttir, ein af markvörðum íslenska liðsins, og vísar til meiðsla sinna. „Ég held að við ráðum þessu sjálfar að mestu leyti. Við getum komið með óskir og þá eru þær eldri vanalega spurðar. Ég hef ekki átt fastan herbergisfélaga síðan Laufey Ólafsdóttir hætti. Þær meiðast alltaf sem eru með mér í herbergi þannig að það er ágætt að hafa mig eina því þá verða engin skakkaföll,“ segir Þóra í léttum tón.Ekki margar reglurSigurður Ragnar segir að það séu ekki margar reglur í gangi hjá stelpunum á Evrópumótinu í Svíþjóð. „Það er ekki mikið af reglum. Þær segja við mig þessar ungu sem koma upp í A-landsliðið að það sé ekki eins mikið af reglum hjá okkur og í 19 ára og 17 ára landsliðunum. Það er eðlilegt því þær eru orðnar fullorðnar núna og fá meira frjálsræði,“ segir Sigurður Ragnar. „Þær fá frjálsan tíma þar sem þær geta farið út af hótelinu og gert það sem þær vilja á ákveðnum tímum. Þær læra samt smátt og smátt gildin sem eru í hópnum okkar og hvernig eldri leikmennirnir haga sér í undirbúningnum. Það er meira frjálsræði hjá okkur og ég hef ekki mikið af reglum. Þær hafa nýtt það frjálsræði vel, staðið sig mjög vel og gert allt fagmannlega,“ segir Sigurður Ragnar.
Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Körfubolti Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Körfubolti Fleiri fréttir West Ham kaupir Arne Engels Hafrún skoraði í öruggum sigri The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Glódís Perla lyfti bikar í þriðja sinn á árinu 2026 Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Hlín opnaði markareikninginn hjá Malmö með tvennu Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Thelma Karen með mark í stórsigri Häcken Fastir í þriðja gír og bitlausir Fullkomin byrjun hjá Emelíu og Köge Ferran Torres gengur til liðs við PSG Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum „Þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir í“ Hringekja tapreksturs í fótboltanum „Ísland breytti lífi mínu“ Draumur að vinna með José Mourinho Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Sjá meira