Átján ára aldursmunur Óskar Ófeigur Jónson í Vaxjö skrifar 13. júlí 2013 10:00 Katrín og Glódís Perla á æfingu íslenska landsliðsins í Växjö í gær. Þær spiluðu saman síðusta hálftímann gegn Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
Þegar Glódís Perla Viggósdóttir fæddist í lok júní 1995 var Katrín Jónsdóttir komin í stórt hlutverk í efstu deild, búin að spila fimm A-landsleiki og hafði verið útnefnd efnilegasta knattspyrnukona landsins. Nú, átján árum síðar, spila þær stöllur hlið við hlið í miðri vörn íslenska landsliðsins. Glódís leysti Sif Atladóttur af síðasta hálftímann á móti Noregi, en íslenska liðið náði frábærum endaspretti í leiknum og tókst að tryggja sér sögulegt stig. „Ég var óvenjufljót að sofna miðað við það að vera að spila svona seint og þá spennu sem var tengd því að spila,“ segir Katrín en ekki alveg sömu sögu var að segja af Glódísi.Lengi að sofna „Ég var reyndar svoítið lengi að sofna, sem er kannski bara eðlilegt. Það var ekki auðvelt að koma inn á. Ég hugsaði bara um að þetta væri tækifærið mitt,“ segir Glódís Perla. Hún var næstum því búin að skora sjálfsmark í lokin en slapp. Glódís fer að hlæja vandræðalega þegar það er rifjað upp en fyrirliðinn kemur henni strax til bjargar. „Það var aldrei nein hætta,“ segir Katrín. Fyrirliðinn er ánægð með nýja miðvörðinn. „Við erum búnar að spila svolítið saman í ár og hún hefur líka spilað með Sif. Hún er búin að standa sig rosalega vel, sem er alveg frábært,“ segir Katrín en er næsta Kata komin? „Ég segi bara að það sé næsta Glódís komin,“ segir Katrín létt. Þær Katrín og Glódís eiga svo sannarlega margt sameiginlegt. Báðar byrjuðu þær að sparka bolta í Kópavoginum (Katrín með Breiðabliki og Glódís Perla með HK), skiptu síðan yfir í Stjörnuna (Katrín lék með Stjörnunni sumarið sem Glódís fæddist) og voru kosnar efnilegustu leikmenn deildarinnar árið sem þær fengu bílprófið (Katrín 1994 og Glódís Perla 2012). Þær spiluðu sinn fyrsta landsleik þegar þær voru á sautjánda aldursári og báðar léku þær fyrsta landsleikinn sinn á móti Skotum. Þær eiga það einnig sameiginlegt að hafa spilað á bæði miðju og í framlínu þótt Glódís Perla hafi miklu miklu fyrr fært sig aftar á völlinn.Les leikinn mjög vel „Við eigum það líka sameiginlegt að okkur finnst bjúgu rosalega góð,“ segir Katrín og Glódís Perla tekur undir það skellihlæjandi. En hvað segir Katrín um Glódísi? „Hún er gríðarlega efnileg og er í raun bara orðin mjög góð. Hún hefur margt sem þarf til að vera góður varnarmaður. Hún er sterk í návígi, góð í skallaboltum og les leikinn vel, sem er afar mikilvægt sem miðvörður,“ segir Katrín um Glódísi. En hvað hefur Glódís lært mest af Katrínu þann tíma sem þær hafa verið saman í landsliðinu? „Ég held að ég sé búin að læra allt sem ég get af Kötu, bæði hvað varðar fótboltann og hvernig karakter hún geymir. Það væri alls ekki leiðinlegt að eiga svona feril,“ segir Glódís. „Hún þorir ekkert að segja neitt annað,“ heyrist í Katrínu, en Glódís ætti að eiga í henni fullkomna fyrirmynd. „Ég held að stefnan sé bara að vera jafnlengi í þessu,“ segir Glódís brosandi. Katrín ætlar að kveðja í haust og verður ekki aftur snúið úr þessu. „Auðvitað væri ég alveg til í að spila þangað til ég verð fimmtug en maður verður að fara að hlusta á líkamann sinn,“ segir Katrín, sem nýtur síðustu leikjanna til fullnystu. En er Glódís orðin leið á umræðunni um hversu ung hún er? „Mér finnst ég ekki vera svo ung lengur. Við getum sagt að ég sé búin að vinna mér inn einhverja reynslu og það mun nýtast mér. Það losaði aðeins um stressið að fá að koma inn á gegn Noregi,“ segir Glódís, klár í næsta leik og jafnvel í næstu átján ár í íslenska landsliðinu. Það verður samt verðugt og vandasamt verkefni að skila jafnmiklu til íslenska kvennalandsliðsins og hin eina og sanna Katrín Jónsdóttir.
Mest lesið EM í dag: Fullkominn leikur fyrir Gumma Gumm Handbolti Ótrúleg sigurganga Luke Littler tók loks enda Sport Skýrsla Henrys: Sláturtíð í Kristianstad Handbolti „Ég er bara aumur aðstoðarþjálfari“ Sport Vikor Gísli rændur á tölfræðiblaðinu Handbolti Sjáðu gleðina hjá Íslendingum í Kristianstad Handbolti Færeyingar fengu stig með hádramatískum hætti Handbolti Ungverjar ekki í vandræðum með Pólverja Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ítalíu: Her Napóleons gjörsigraður Handbolti „Höllin var æðisleg“ Handbolti Fleiri fréttir Hákon horfði upp á tap er PSG tók toppsætið Líklegra að Vinícius Jr. framlengi við Real Madrid eftir brottför Xabi Alonso Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Gamla Íslendingafélagið gæti breytt aftur um nafn Breytingar hjá Breiðabliki Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Albert fær liðsfélaga frá Leeds Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Í lífstíðarbann fyrir þessa óhuggulegu tæklingu Kenna Donald Trump og falli Bandaríkjadals um sjö milljarða tap „Á eftir bolta kemur barn“ Rúmlega hálfur milljarður manna sótti um miða á HM Börsungar sluppu fyrir horn Nökkvi og félagar féllu úr leik í bikarnum Stórleikur hjá Rabiot í mikilvægum sigri AC Milan Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Guðrún klæðist grænu á nýjan leik Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt KR í samstarf við akademíu í Gana Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Samuel Eto'o settur í bann fyrir slæma hegðun en sambandið kvartar Sláandi mynd af þjálfurum þriggja stærstu spænsku félaganna frá 2011 Sjáðu bæði mörk Viktors í gær Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins Heimamenn Marokkó í úrslitaleikinn eftir vítaspyrnukeppni „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Martraðarbyrjun hjá Arbeloa í Madríd Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Tómas Bent gulltryggði sigurinn Sjá meira