Fótbolti

Orðaleikur stelpnanna hafinn

Óskar Ófeigur Jónsson í Kalmar skrifar
Katrín Ómarsdóttir, önnur frá hægri, fékk liðsfélaga sína til að brosa á æfingunni í gær.
Katrín Ómarsdóttir, önnur frá hægri, fékk liðsfélaga sína til að brosa á æfingunni í gær. fréttablaðið/óskaró
Evrópumeistaramótið í Svíþjóð hefst í dag en Ísland hefur leik á morgun. Katrín Ómarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir verða í stóru hlutverki með íslenska landsliðinu á EM, innan sem utan vallar. En hvor þeirra er aðalprakkarinn í íslenska landsliðshópnum?

Það hefur verið mikið ritað og rætt um fjarveru Eddu Garðarsdóttur á EM í Svíþjóð sem hefst í dag, en það er ekki síst karakter Eddu sem er sárt saknað því hún var vön að létta leikmönnum lífið á bak við tjöldin.

Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem hefur umgengist kvennalandsliðið að Edda kann að kalla fram bros hjá liðsfélögum sínum, en það var hún sem boðaði hrekkjusvínafaraldur í Finnlandi fyrir fjórum árum og stóð örugglega við sitt.

Það er vissulega mikið af skemmtilegum og sniðugum stelpum í íslenska hópnum en spjótin beinast þó að tveimur þegar kemur að finna eftirmann Eddu í prakkarastrikunum.

Fréttablaðið hitti þær Katrínu Ómarsdóttur og Hallberu Guðnýju Gísladóttur og spurði þær út í prakkaraskapinn. Það var stutt í hláturinn og lítið um alvarleg svör hjá þessum skemmtilegu karakterum en þær eiga samt örugglega eftir að taka upp á einhverju óvæntu og skemmtilegu næstu dagana.

„Ég er orðin spennt fyrir þessu og það er gaman að vera komin til Kalmar. Ferðalagið var svolítið langt en allt hefur gengið eins og það á að ganga,“ segir Katrín, en hvað með lífið utan vallar?

Hallbera er svolítill kútur

„Nei, ég held að ég sé ekki orðin aðalprakkarinn. Hallbera er svolítill prakkari. Hún er svolítill kútur,“ sagði Katrín en vill meina að enginn í liðinu sé að reyna að fylla skarð Eddu. „Hún var stór karakter en það eiga bara allir að vera þeir sjálfir og sinna sínum hlutverkum þannig. Það er enginn að fylla neitt skarð,“ segir Katrín. Hún er samt sammála því að hlátur, glens og gaman verði að vera stór hluti af samverustundum liðsins á mótinu.

„Þetta verður að vera gaman líka,“ segir Katrín. Að sjálfsögðu bárum við prakkaraummælin undir Hallberu sem var auðvitað búin að frétta af því hvaða stimpil liðsfélagi hennar var búinn að gefa henni.

Grín og hlátur verður að fylgja

„Ég er mjög hress. Við erum búnar að bíða lengi eftir þessu og höfum verið að æfa heima. Loksins er komið að þessu,“ segir Hallbera, en leynist í henni prakkari? „Katrín er svo mikill kútur. Það verður að hafa gaman af þessu líka. Það þarf að fylgja þessu smá grín og hlátur. Ég kannski hrekki Katrínu bara fyrst hún er að skjóta svona á mig,“ sagði Hallbera hlæjandi.

Þar er væntanlega von á ýmsu enda varð það frægt á Íslandi í byrjun ársins þegar hún eyddi mjög löngum tíma inni í skáp til þess eins að geta hrekkt herbergisfélaga sinn, Fanndísi Friðriksdóttur, á Algarve-mótinu.

Mikilvægasti leikurinn okkar

Bæði Katrín og Hallbera kölluðu hvor aðra kút, eins og lesa má hér að framan, og það var örugglega hluti af orðaleik stelpnanna, þar sem þær fá það verkefni að stinga orðum inn í viðtöl við fjölmiðla.

Báðar gera þær sér þó fulla grein fyrir mikilvægi fyrsta leiksins á móti Noregi á morgun. „Þetta er mikilvægasti leikurinn í riðlinum fyrir okkur. Ef við vinnum hann þá er allt mögulegt en ef við töpum honum þá verður þetta miklu erfiðara,“ sagði Katrín og Hallbera er líka klár í verkefni.

„Við finnum það alveg að fólk er ekkert að gera alltof miklar væntingar til okkar en það er allt í lagi. Við vitum sjálfar hvað við getum gert,“ sagði Hallbera að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×