Áburðarkóngurinn í Mónakó Henry Birgir Gunnarsson skrifar 28. maí 2013 07:00 Rybolovlev lætur iðulega sjá sig með fína fólkinu í Mónakó. Hér mætir hann á frumsýningu á myndinni The Great Gatsby. nordicphotos/getty
Margir knattspyrnuáhugamenn hafa furðað sig á því að franska félagið AS Monaco sé farið að láta hraustlega til sín taka á leikmannamarkaðnum. Peningar virðast ekki skipta neinu máli miðað við síðustu kaup félagsins. Það er moldríkur Rússi sem stendur á bak við liðið en hann efnaðist á því að framleiða áburð. Útlitið var ekki bjart hjá hinu fornfræga félagi AS Monaco í desember árið 2011. Þá blasti við félaginu fall niður í 3. deild franska boltans. Félagið þurfti á kraftaverki að halda og það kom í líki Rússans moldríka Dmitry Rybolovlev. Hann lofaði í fyrstu að setja 100 milljónir evra, eða 16 milljarða króna, í liðið á fjórum árum. Nú er ansi líklegt að sú upphæð endi í 200 milljónum evra. Rússinn eyðir nefnilega peningum þessa dagana eins og þeir séu að detta úr tísku. Hann er nýbúinn að eyða 70 milljónum evra í þá Joao Moutinho og James Rodriguez hjá Porto. Hann er einnig að landa Kólumbíumanninum eftirsótta Radamel Falcao, en hann kostar rúmar 50 milljónir evra. Falcao er svo gott sem kominn til félagsins og Rússinn verður þá búinn að eyða 120 milljónum evra í þrjá leikmenn á innan við viku. Hann er þess utan hvergi nærri hættur. Þjálfari Monaco í dag er Ítalinn reyndi Claudio Ranieri, en undir hans stjórn komst félagið aftur upp í úrvalsdeild í vetur. Ekki mun nein meðalmennska duga þar heldur ætlar Monaco að veita meisturum PSG hraustlega keppni næsta vetur. En hver er þessi ríki Rússi sem hefur verið tiltölulega óþekktur hingað til? Hann er ekki eins og flestir nýríkir Rússar sem urðu ríkir á olíu og gasi. Rybolovlev er nefnilega áburðarkóngur og það tók hann langan tíma að verða sterkefnaður. Fimmtán árum eftir að hafa stofnað áburðarfyrirtæki seldi hann það á um fjóra milljarða evra. Rybolovlev, sem er menntaður lyfjafræðingur, hefur síðan verið að sinna hugðarefnum sínum. Að eiga lið AS Monaco og stýra því er einfaldlega áhugamál hjá honum. Rússinn hefur þess utan gaman af brimbrettum og listum. Fortíð þessa moldríka manns er þó þyrnum stráð. Í lok síðustu aldar var hann ákærður fyrir morð og mátti dúsa í fangelsi í tæpt ár. Hann var þó á endanum sýknaður. Lífið í Rússlandi var þó erfitt. Hann fékk stöðugar líflátshótanir og svo alvarlega tók hann þær að skothelt vesti var orðið hluti af hversdagsklæðnaðinum. Á endanum fékk Rybolovlev nóg og flutti til Sviss.Í erfiðu skilnaðarmáliClaudio Ranieri stýrir liði Monaco í dag.Nordicphotos/AFPFyrir þremur árum sótti eiginkona hans frá árinu 1987 um skilnað og fór fram á 4,6 milljarða evra frá Rybolovlev. Að hennar mati var það helmingur þess sem hann hafði grætt síðan þau giftust. Skilnaðarmálið er enn fyrir dómstólum. Rybolovlev var í 119. sæti á síðasta lista Forbes yfir ríkustu menn heims en eiginkonan, Elena, segir að hann eigi miklu meiri peninga sem hann feli á reikningum víða um heim. Rússinn hefur látið til sín taka á fasteignamarkaðnum í Bandaríkjunum og hann komst í fréttirnar er hann keypti glæsivillu Donald Trump á Palm Beach. Listir eru einnig hans ær og kýr og hann er á topp 200 lista yfir helstu listaverkasafnara heims. Safn hans er í dag metið á 780 milljónir evra. Hann hefur aðeins slakað á málverkakaupunum og er í staðinn farinn að kaupa fokdýra knattspyrnumenn og verður áhugavert að sjá hvernig það safn hans verður á endanum.
Fótbolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Sjá meira