Biðja um frið til að jafna sig Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 13. maí 2013 12:00 Íbúar Cleveland hafa sýnt mikla samstöðu með konunum þremur eftir að afdrif þeirra urðu ljós á mánudag. Fréttablaðið/AP
Amanda Berry, Gina DeJesus og Michelle Knight, sem frelsaðar voru úr kynlífsánauð í Cleveland í Bandaríkjunum á mánudag, gáfu frá sér yfirlýsingu í gær. Biðja þær um frið til að jafna sig en segjast jafnframt þakklátar fyrir þann gríðarlega stuðning sem þær hafa fundið. „Ég er rosalega hamingjusöm yfir því að vera komin heim. Ég vil þakka fyrir allan stuðninginn sem ég hef fundið og allar bænirnar. Nú vil ég einungis fá frið til að verja tíma með fjölskyldu minni,“ sagði DeJesus í yfirlýsingu sem lögmaður hennar las fyrir fjölmiðla. Konunum þremur, sem eru nú á þrítugs- og fertugsaldri, var rænt á árunum 2002 til 2004 þegar þær voru 14 ára, 16 ára og 20 ára. Að sögn lögreglu hafa þær síðan dvalið í ánauð á heimili Ariels Castro þar sem þeim var ítrekað nauðgað og einungis leyft að fara út úr húsi í örfá skipti. Castro, sem er 52 ára gamall fyrrverandi skólabílstjóri, hefur verið ákærður fyrir mannrán og nauðganir. Þá hefur saksóknari lýst því yfir að hugsanlega verði Castro ákærður fyrir morð en talið er að hann hafi samtals fimm sinnum orsakað fósturlát hjá konunum þremur. Verði Castro ákærður fyrir morð gæti hann átt yfir höfði sér dauðarefsingu.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira