Bólusetja fátækustu stúlkurnar Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. maí 2013 07:00 Gardasil er meðal bóluefna sem notuð eru til að stemma stigu við kynfæravörtum. Fréttablaðið/AP
Tvö fjölþjóðleg lyfjafyrirtæki í félagi við alþjóðasamtök á heilbrigðissviði taka þátt í verkefni sem miðar að því að auka vernd milljóna stúlkna í fátækum löndum gegn leghálskrabbameini. Byrjað verður á verkefnum í átta Asíu- og Afríkulöndum, en þegar upp er staðið á að bólusetja meira en 30 milljónir stúlkna í yfir 40 löndum fyrir árið 2020. Verkefnið er sagt geta haft gífurleg áhrif, sér í lagi þar sem flestar konur látast úr leghálskrabbameini í þróunarlöndum. Bólusett er við HPV-veiru, eða kynfæravörtuveirunni, en smit hennar eykur til muna hættuna á leghálskrabbameini. GAVI Alliance, samstarfsverkefni opinberra og einkaaðila við að koma bóluefni við barnasjúkdómum til fátækra landa, kynnti verkefnið í gær. „Núna eru mörkuð tímamót í heilsufari kvenna og stúlkna um heim allan,“ sagði dr. Seth Berkley, forstjóri GAVI. „Brúa þarf bilið milli stúlkna í fátækum og ríkum löndum þannig að allar stúlkur njóti verndar gegn leghálskrabbameini, burtséð frá fæðingarstað.“ Til að byrja með útvega lyfjaframleiðendurnir Merck & Co. og GlaxoSmithKline PLC 2,4 milljónir skammta af bóluefni gegn HPV-veirunni, fyrir brot af því verði sem almennt er innheimt fyrir lyfið.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira