Tvær kvennanna komnar til síns heima Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar 9. maí 2013 07:00 Amanda Berry og Gina DeJesus sneru heim í gær en Michelle Knight er enn á spítala. Einn mannræningjanna tók þátt í leitinni að DeJesus á sínum tíma og mætti á minningarathafnir um hana. Fréttablaðið/AP
Tvær kvennanna þriggja sem var haldið föngnum í húsi í Cleveland í áratug sneru heim til sín í gær. Sú þriðja er sögð við góða líkamlega heilsu á spítala í borginni. Eigandi hússins sem konurnar fundust í, Ariel Castro, var í gær ákærður fyrir mannrán á fjórum stúlkum og nauðgun á þremur. Bræður hans tveir, Onil og Pedro, voru ekki ákærðir en þeir höfðu verið grunaðir og yfirheyrðir af lögreglu áður. Á blaðamannafundi í gær kom fram að vitnisburður fórnarlambanna og bræðranna allra hafi leitt í ljós að Onil og Pedro vissu ekkert um gjörðir bróður síns. Þeir voru handteknir vegna þess að þeir voru með Ariel þegar hann fannst. Þeir munu koma fyrir dómara í dag og verður væntanlega sleppt. Amanda Berry og sex ára gömul dóttir hennar, sem fæddist í prísundinni, komu heim til systur Berry um miðjan dag í gær. Mikill fjöldi hafði safnast saman fyrir framan heimilið og til stóð að Berry ræddi stuttlega við fjölmiðla. Hún treysti sér þó ekki til þess og systir hennar las upp stutta yfirlýsingu þar sem hún þakkaði alla hjálp og bað um að fjölskyldan fengi næði. Lögregla hefur ekki viljað segja neitt um dóttur Berry eða hvort hinar konurnar hafi orðið þungaðar í prísundinni. Gina DeJesus sneri einnig heim til fjölskyldu sinnar í gær og fjöldi fólks var þar fyrir utan til að bjóða hana velkomna heim. Michelle Knight, þriðja konan, er enn á spítala. Berry slapp úr húsinu með hjálp nágranna á mánudag. Þeim tókst svo að ná dóttur hennar og hinum konunum tveimur út. Að sögn lögreglu var þetta fyrsta flóttatilraun þeirra, en þær sögðust aðeins hafa farið út úr húsi tvisvar allan tímann sem þær voru í haldi. Þær fóru þó aðeins úr húsinu og í bílskúrinn, svo þær muni. Lögreglustjórinn Michael McGrath sagði við fjölmiðla í gær að hann væri fullviss um að lögreglan hefði gert allt sem í hennar valdi stóð í leitinni að stúlkunum á sínum tíma. Nágrannar segjast þó hafa látið lögreglu margsinnis vita af því að eitthvað vafasamt ætti sér stað í húsinu. McGrath sagði engin gögn um slík símtöl hjá lögreglunni. Nágrannar hafa meðal annars sagst hafa séð lítið barn horfa út um glugga hússins og eina konuna skríða nakta í garðinum við húsið.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira