Vilja að stjórnvöld grípi inn í kjaradeilu 24. apríl 2013 00:30 Kjarabarátta Næstum fjórar vikur eru síðan verkbann var sett á um 70.000 danska kennara. Aukinn þrýstingur er á að ríkið höggvi á hnútinn.NordicPhotos/AFP
Samtökin Foreldrar og skóli í Danmörku vilja að stjórnvöld grípi inn í til að binda enda á kjaradeilu kennara og sambands sveitarfélaga. Kannanir sýna að meirihluti landsmanna er á þeirri skoðun og að meiri samúð er með sjónarmiðum kennara en sveitarfélaganna. Nú er gengið á fjórðu viku síðan sveitarfélögin settu verkbann á kennara til að knýja á um breytingar á vinnufyrirkomulagi. Ekkert hefur þokast í samkomulagsátt og er ástandið farið að hafa mikil áhrif á heimilin í landinu, enda þurfa foreldrar að gera ráðstafanir vegna þeirra 600.000 barna sem sitja heima. Ríkisstjórnin hefur ekkert gefið út um hvort og þá hvernig verður gripið inn í en Politiken hefur eftir sérfróðum að þess verði vart langt að bíða. Líklegast verður um lagasetningu að ræða, en stjórnvöld geta nýtt sér flýtimeðferð til að keyra málið í gegnum þingið í einum rykk í stað hinna hefðbundnu þriggja umræðna. Verkbannið gengur nú inn á prófatíma og segir Barnaheill í Danmörku að það sé farið að koma niður á börnunum. Of lítið tillit sé tekið til þeirra hagsmuna.- þj
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Sjá meira