Takmarkanir settar á úttektir í bönkum Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. mars 2013 06:00 Viðskiptavinir hafa þurft að láta hraðbanka duga en þeir hafa margir tæmst af fé. Nordicphotos/AFP
Bankarnir á Kýpur búa sig undir að opna útibúin í dag, eftir nærri tveggja vikna lokun meðan ráðamenn voru að ná samkomulagi við Evrópusambandið um neyðarlán. Takmarkanir verða þó áfram á því hve mikið viðskiptavinir tveggja stærstu bankanna, Laiki-bankans og Kýpurbanka, geta tekið út í einu. Þá hafa öryggisverðir verið ráðnir til að standa vörð um öll bankaútibú eyjunnar af ótta við að læti geti brotist út. „Viðvera okkar á að hughreysta bæði starfsfólk bankanna og viðskiptavini,“ segir John Argyrou, framkvæmdastjóri öryggisþjónustufyrirtækis sem útvegar verðina. Hann á þó ekki von á miklum látum: „Það getur orðið einstaka atvik en kurteisi og þolinmæði er í menningu okkar, þannig að ég reikna ekki með neinu alvarlegu.“ Höftin verða í gildi í að minnsta kosti eina viku, eða þangað til ástandið róast. Lokun bankanna hefur valdið jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum ómældum vandræðum. Samkvæmt samkomulaginu, sem náðist á mánudag, verða báðir stærstu bankarnir endurskipulagðir. Stærstu viðskiptavinir þeirra þurfa að taka á sig tap en almenningi er hlíft. Laiki-bankanum verður skipt í „slæman“ og „góðan“ banka og sá góði sameinaður Kýpurbanka.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Sjá meira