Risavaxin álagsárás hægir á netumferð Brjánn Jónasson skrifar 28. mars 2013 06:00 Tölvuþrjótar geta notað net sýktra tölva til að auka álag á netþjóna fyrirtækja eða stofnana svo mikið að þeir hrynja. Nordicphotos/AFP
Tækni Stórfelld netárás sem beinist gegn fyrirtæki sem berst gegn ruslpósti hefur hægt á allri netumferð. Sérfræðingar segja þetta stærstu álagsárás sem gerð hefur verið á netinu frá upphafi. Markmið árásarinnar virðist vera að torvelda starfsemi fyrirtækisins Spamhaus, að því er fram kemur í frétt BBC. Fyrirtækið notast við svartan lista yfir vefþjóna til að stöðva sendingar á ruslpósti. Árásin hófst fyrir viku og hefur staðið yfir óreglulega síðan. Kveikjan að árásinni virðist hafa verið sú ákvörðun stjórnenda Spamhaus að setja vefþjóna hollenska fyrirtækisins Cyberbunker á svartan lista. Cyberbunker hýsir hvaða efni sem er annað en efni sem sýnir ofbeldi gegn börnum og efni tengt hryðjuverkum. Í kjölfarið fékk Spamhaus skilaboð frá manni sem sagðist vera talsmaður Cyberbunker þar sem hann fordæmdi Spamhaus fyrir að reyna að stýra því hvað fær að fara á netið. Spamhaus segir árásina ekki hafa skilað tilætluðum árangri. „Við höfum staðið þetta af okkur, þeim hefur ekki tekist að taka okkur niður,“ segir Steve Linford, forstjóri Spamhaus, við BBC. „Svona öflug árás myndi taka niður nokkurn veginn alla aðra en okkur.“ Fyrirtækið rekur 80 vefþjóna víða um heim til að verjast árásum af þessu tagi. Þá hefur Google létt álagi af vefþjónum Spamhaus með því að hleypa umferðinni á eigin netþjóna.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira