Neyðarlánið bjargar Kýpur fyrir horn Guðsteinn Bjarnason skrifar 26. mars 2013 00:30 Starfsfólk Laiki-bankans á Kýpur hefur tekið þátt í mótmælum fyrir utan þinghúsið í Nikosíu.fréttablaðið/AP
Kýpverskir ráðamenn segja samkomulagið sem tókst snemma í gærmorgun vera sársaukafullt. Þríeyki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og seðlabanka Evrópusambandsins hefur fallist á að veita Kýpverjum neyðarlán upp á tíu milljarða evra, jafnvirði um það bil 1.600 milljarða króna, gegn því að næststærsti banki landsins fari að stórum hluta í gjaldþrotameðferð. „Þetta þýðir ekki að við séum búin að sigrast á þessu, heldur hefur okkur í raun tekist að koma í veg fyrir brottför af evrusvæðinu, sem hefði haft skelfilegar afleiðingar," höfðu fjölmiðlar eftir Michalis Sarris, fjármálaráðherra Kýpur. Samkomulagið felur í sér að innistæður umfram 100 þúsund evrur í Laiki-bankanum muni líklega að stórum hluta tapast. Stór hluti innistæðnanna var í eigu rússneskra auðjöfra, sem hafa notfært sér Kýpur sem skattaskjól. Almenningur á Kýpur sleppur hins vegar að mestu með skrekkinn, því innistæður upp að 100 þúsund evrum verða fluttar í annan banka og njóta fullrar tryggingar. Þetta er í fyrsta sinn sem Evrópusambandið fellst á að láta innistæðueigendur taka á sig hluta tapsins. Á Grikklandi voru það á endanum fjárfestar sem tóku á sig hluta tapsins, og þurfti að fá samþykki þeirra til. En ekki var hróflað við innistæðum í grískum bönkum, ekki frekar en á Írlandi, Spáni eða í Portúgal. Óttast er að þetta fordæmi geti haft áhrif á auðjöfra víða um heim, sem muni hér eftir hika við að geyma fé sitt á bankareikningum í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Afleiðingarnar á Kýpur eru meðal annars þær að bankakerfi landsins skreppur verulega saman, fer úr því að vera áttföld landsframleiðsla niður í viðráðanlega stærð. Jafnframt verður Kýpur af þeim tekjum sem hafa komið frá því að vera skattaskjól.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira