Jafnaðarmenn aftur til valda 14. mars 2013 06:00 Aleqa Hammond Leiðtogi Siumut-flokksins á kjörstað á þriðjudag.
Aleqa Hammond, leiðtogi sósíaldemókrataflokksins Siumut, er ótvíræður sigurvegari kosninga til grænlensku landstjórnarinnar, sem haldnar voru á þriðjudag. „Ég er ánægð með að Siumut er kominn aftur,“ segir hún, en flokkurinn var í forystu landstjórnarinnar í þrjá áratugi, allt frá því að Grænlendingar fengu heimastjórn árið 1979 og þangað til vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit vann sigur fyrir fjórum árum. Hammond er jafnframt fyrsta konan sem verður formaður grænlensku landstjórnarinnar. Siumut hlaut 14 sæti í landstjórninni, þannig að flokknum nægir að fá til liðs við sig einn tveggja manna flokk til að vera með 16 manna meirihluta, en í landstjórninni situr 31 fulltrúi grænlensku þjóðarinnar. Ríkisstjórn Danmerkur hefur fagnað úrslitunum og vonast eftir betra samstarfi við grænlensku landstjórnina, einkum varðandi auðlindalöggjöfina sem grænlenska þingið samþykkti á síðasta ári. Auðlindalögin opna á erlendar fjárfestingar í vinnslu auðlinda úr jörðu á Grænlandi og hafa verið kölluð Kínverjalögin vegna þess að Kínverjar hafa sýnt mikinn áhuga á slíkum fjárfestingum. Til að lögin fái fullt gildi þarf danska þingið hins vegar að gera breytingar á útlendingalöggjöfinni, en hefur verið að bíða með það þangað til eftir kosningarnar á Grænlandi, sem nú eru afstaðnar. Danskir stjórnmálamenn hafa margir verið ósáttir við grænlensku auðlindalögin en hafa engu að síður ekki viljað neita þeim um breytingar á dönsku útlendingalöggjöfinni. Siumut-flokkurinn hefur hins vegar sagst vera ósáttur við ýmislegt í lögunum og boðar að þeim verði breytt, þannig að með sigri flokksins er þrýstingi létt af danska þinginu um stund. „Ég vænti þess að nú hefjist viðræður um þá þætti sem Siumut hefur gagnrýnt,“ er haft eftir Flemming Møller Mortensen, talsmanni danska Sósíaldemókrataflokksins, á fréttasíðu danska dagblaðsins Politiken.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira