Chavez kvaddur og Maduro sór eiðinn Guðsteinn Bjarnason skrifar 9. mars 2013 06:00 Chavez syrgður Mikill mannfjöldi fyllti göturnar í Caracas í gær að kveðja hinn nýlátna forseta. nordicphotos/AFP
Strax eftir að útför Hugo Chavez, forseta Venesúela, lauk í gær sór útnefndur arftaki hans embættiseið til bráðabirgða. Venesúelabúar eru ekki allir sáttir við þá ákvörðun að smyrja lík hins látna og hafa það til sýnis eins og Lenín og Maó. Tugir ráðamanna frá öllum heimshornum lögðu leið sína til Venesúela í gær til að kveðja Hugo Chavez forseta, sem lést á þriðjudaginn eftir erfiða baráttu við krabbamein. Að jarðarförinni lokinni tóku þeir þátt í annarri athöfn, þar sem Nicolas Maduro sór embættiseið sem forseti til bráðabirgða, eða þangað til að loknum forsetakosningum. Samkvæmt stjórnarskrá landsins þarf að kjósa nýjan forseta í síðasta lagi þrjátíu dögum eftir fráfall fyrri forseta. Chavez hafði gefið þjóð sinni skýrt til kynna að hann vildi að hún kysi Maduro í embættið þegar þar að kæmi. Almenningur fjölmennti einnig til útfararinnar. Göturnar voru þéttskipaðar fólki og um tíma var tveggja kílómetra biðröð eftir því að fá að líta Chavez augum. Dagurinn í gær var hápunkturinn á þriggja daga minningarhátíð sem efnt hefur verið til í landinu aftir að forsetinn dó. Skólum hefur verið lokað og fjölmörg fyrirtæki gáfu starfsfólki sínu frí. „Þetta er sögulegt, ég hef aldrei séð annað eins,“ segir Edila Ojeda, 57 ára húsvörður í höfuðborginni, sem var frá sér numinn eins og margir aðrir landsmenn, einkum þó stuðningsmenn forsetans nýlátna. Líkið af Hugo Chavez var hins vegar ekki grafið niður í jörð, heldur verður það smurt og haft til sýnis um aldur og ævi. Eða þangað til annað verður ákveðið. Maduro segir að líkið verði geymt í kristalkistu í Byltingarsafninu, skammt frá forsetahöllinni Miraflores. Ekki voru þó allir íbúar Venesúela á eitt sáttir með þessa ráðstöfun: „Í alvöru? Er þetta ekki brandari?“ spurði Juan Ferreira, 51 árs gamall götusali. Nokkur kommúnistaríki tuttugustu aldarinnar gripu til þess ráðs að smyrja lík látinna leiðtoga sinna og hafa almenningi til sýnis. Þetta var gert við líkið af Vladimír Lenín í Sovétríkjunum, Ho Chi Minh í Víetnam og Mao Zedong í Kína. Chavez hafði stjórnað Venesúela í fjórtán stormasöm ár. Hann skapaði sér vinsældir meðal fátækra landsmanna með því að nota olíuauð landsins til að styrkja stöðu þeirra. Á hinn bóginn var hann gagnrýndur fyrir mannréttindabrot og lélega efnahagsstjórn, sem sögð er eiga eftir að koma arftaka hans í koll.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira