Þingið ákærir Klaus forseta fyrir landráð Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar 5. mars 2013 06:00 Vaclav Klaus segist ekki sjá eftir neinu, þrátt fyrir að sakaruppgjöf hans hafi reitt marga Tékka til reiði. nordicphotos/afp
Efri deild tékkneska þingsins samþykkti í gær landráðaákæru á hendur forsetanum Vaclav Klaus. Klaus er sakaður um stjórnarskrárbrot með því að veita sex þúsund föngum sakaruppgjöf. Hann lætur af embætti á fimmtudag og sér ekki eftir neinu. Vaclav Klaus, forseti Tékklands, verður ákærður fyrir landráð, samkvæmt ákvörðun efri deildar tékkneska þingsins frá því í gær um að vísa landráðamáli á hendur honum til stjórnskipunardómstóls landsins. Klaus veitti um sex þúsund föngum almenna sakaruppgjöf þann fyrsta janúar. Sakaruppgjöfin náði meðal annars til sakborninga í nokkrum fjársvikamálum sem höfðu hlotið mikla fjölmiðlaumfjöllun. Hann sagðist vilja stöðva endalaus réttarhöld, en sakaruppgjöfin vakti upp mikla reiði meðal Tékka, sem margir hverjir eru þreyttir á mikilli og útbreiddri spillingu í landinu. Sakaruppgjöfin er ástæðan fyrir ákvörðun þingsins, auk þess sem meirihlutinn telur Klaus hafa brotið í bága við stjórnarskrá landsins í öðrum málum, til dæmis þegar hann neitaði að skrifa undir lög um björgunarsjóð evrunnar, þrátt fyrir að meirihluti þingsins hafi samþykkt þau. Vinstriflokkar hafa meirihluta í efri deild þingsins og þegar kosið var um málið vildu 38 þingmenn kæra Klaus en þrjátíu voru því andvígir. Alls hafa 73 þúsund Tékkar tekið þátt í undirskriftasöfnun til stuðnings landráðaákærunni. Stjórnskipunardómstóllinn mun taka málið fyrir eins fljótt og hægt er, en þó er líklegt að nokkrar vikur muni líða þar til niðurstaða fæst. Viðurlögin við landráðum forseta eru embættismissir, en Klaus lætur af störfum á fimmtudag. Ef hann verður sakfelldur verður honum hins vegar bannað að bjóða sig fram til forseta nokkurn tímann aftur auk þess sem hann gæti misst eftirlaun sín, sem nema um 630 þúsund íslenskum krónum. Andstæðingar forsetans fráfarandi segja tillöguna ekki tilraun til að klekkja á honum, heldur til að skerpa á lögunum til frambúðar. „Við viljum vita hversu langt forseti getur gengið,“ sagði Miroslav Antl öldungadeildarþingmaður. „Þingið var ekki í aðstöðu til að þegja um þetta mál,“ sagði annar þingmaður, Jiri Dienstbier, sem mun sjá um málið fyrir hönd þingsins. „Þingið uppfyllir skyldur sínar með þessu.“ Forsætisráðherrann Petr Necas, sem er samflokksmaður forsetans, hefur fordæmt ákvörðun efri deildarinnar. Hann segir hana árás á mannorð ríkisins og byggða á persónulegu hatri á forsetanum. Klaus hefur sjálfur sagt að hann sjái ekki eftir sakaruppgjöfinni, og að hann myndi haga málum alveg eins ef hann tæki ákvörðun í dag.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Sjá meira