Erlent

Undirbúningur páfakjörs hefst

Fær það hlutverk að stjórna páfakjöri.
Fær það hlutverk að stjórna páfakjöri. fréttablaðið/AP
Páfalaust er í Róm eftir að Benedikt XVI hætti klukkan átta á fimmtudagskvöld. Þangað til nýr páfi verður kosinn taka nokkrir háttsettir kirkjunnar menn við daglegri stjórn hennar.

Rúmlega hundrað kardínálar koma saman á mánudag til að ákveða hvenær páfakjör hefst, sem verður í síðasta lagi tuttugu dögum eftir að Benedikt hætti. Að öllum líkindum verður það þó fyrr, jafnvel strax í næstu viku.

Íbúð páfa í Vatíkaninu var innsigluð þegar á fimmtudagskvöld, og verður hún ekki opnuð aftur fyrr en nýr páfi er fundinn.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×