Stytta af Parks á Bandaríkjaþingi 28. febrúar 2013 23:45 Tugir ættingja hennar voru viðstaddir þegar styttan var afhjúpuð.
Rosa Parks varð fræg fyrir að neita að standa upp fyrir hvítum manni í strætisvagni. Í gær sagðist Barack Obama eiga það ekki síst baráttu hennar að þakka að hafa getað orðið forseti Bandaríkjanna. „Óhlýðni Rosu Parks hratt af stað hreyfingu,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann afhjúpaði styttu af henni í þinghúsi Bandaríkjanna í Washington. Viðstaddir voru aðrir helstu leiðtogar þingsins. Eftir að hún neitaði að standa upp fyrir hvítum manni í borginni Montgomery, og var handtekin fyrir vikið og sektuð, þá hættu þúsundir þeldökkra íbúa borgarinnar að nota strætisvagna. „Það er þessu fólki að þakka að ég stend hér í dag,“ sagði Obama og bætti því við að Bandaríkin væru fyrir vikið orðin bæði frjálsara og sanngjarnara samfélag en áður. Í þinghúsinu á Capitol-hæð er stór salur með styttum af einstaklingum sem skipt hafa máli í sögu Bandaríkjanna. Tvær styttur eru frá hverju hinna fimmtíu ríkja Bandaríkjanna, alls hundrað styttur. Fyrir nokkrum árum samþykktu bandarískir þingmenn sérstaklega að styttu af Rosu Parks yrði einnig komið fyrir í salnum. Parks lést árið 2005, þá orðin 92 ára gömul. Tugir ættingja hennar voru viðstaddir athöfnina í gær. Uppreisn Rosu Parks varð upphafið að vitundarvakningu í Bandaríkjunum og öflugri baráttu fyrir réttindum þeldökkra, sem smám saman tók að skila árangri. „Það er gott að við skulum setja styttu af henni hérna,“ sagði Obama. „En við gætum ekki heiðrað minningu hennar betur en með því að halda á lífi þeim mætti sem býr í lífsreglu hennar, og því hugrekki sem sprottið er af sannfæringu.“- gb
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira