Bandaríkin aðstoða uppreisnarmennina Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. mars 2013 10:00 Nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna ræddi við einn af leiðtogum sýrlenskra uppreisnarmanna á fundi í Róm í gær. fréttablaðið/AP
Sýrlenskir uppreisnarmenn fá mat, lyf og fleiri nauðsynjar frá Bandaríkjunum en hernaðaraðstoð er ekki í boði frekar en fyrri daginn. Þetta er engu að síður stefnubreyting af hálfu Bandaríkjanna, sem til þessa hafa haldið sig til hlés að mestu. „Við gerum þetta vegna þess að í þessum átökum verðum við að standa með þeim sem vilja sjá veg Sýrlands vaxa á ný og sjá þar lýðræði og mannréttindi," sagði John Kerry, hinn nýi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á alþjóðlegri ráðstefnu um Sýrland, sem haldin var í Rómaborg í gær. Hann skýrði frá því að Bandaríkin ætluðu að verja 60 milljónum dala, eða nærri tíu milljörðum króna, í aðstoð við uppreisnarmenn í Sýrlandi. Engin hernaðaraðstoð er þó innifalin, heldur fá uppreisnarmennirnir matvæli, lyf og aðrar nauðsynjar. Þessu verður ekki dreift til allra uppreisnaraflanna, sem eru að berjast gegn stjórnarher Bashars al Assad forseta, heldur einungis til þeirra sem Bandaríkjamenn telja hófsama lýðræðissinna. Mouaz al Khatib, leiðtogi öflugasta bandalags sýrlenskra uppreisnarmanna, tók þátt í fundinum og skoraði á Assad forseta að hætta blóðugum bardögum gegn uppreisnarliðinu: „Bashar Assad, hagaðu þér nú einu sinni eins og manneskja," sagði Khatib. Átökin í Sýrlandi hófust snemma árs 2011 og hafa kostað meira en 70 þúsund manns lífið. Ástandið hefur versnað jafnt og þétt, tala flóttamanna er að nálgast milljón og flestar byggðir í landinu hafa orðið fyrir gríðarlegum skemmdum. Rússar og Kínverjar hafa staðið gegn því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna heimili hernaðaríhlutun, en í gær átti François Hollande fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Uppreisnarmenn vilja fá vopn og hernaðaraðstoð frá öðrum löndum en þeir skiptast í marga hópa sem hafa átt erfitt með að starfa saman og velja sér sameiginlega leiðtoga. Þetta hefur einnig átt sinn þátt í að Bandaríkin og fleiri ríki hika við hernaðaraðstoð. Ákvörðun Bandaríkjamanna um að verja tugum milljóna dala í beina aðstoð til uppreisnarmanna, þótt ekki sé það hernaðaraðstoð, er töluverð stefnubreyting. Kerry utanríkisráðherra baðst þó nánast afsökunar á því að Bandaríkin skyldu ekki gera meira og sagði að önnur ríki væru einnig að gera ýmislegt: „Ég er sannfærður um að í heildina muni þetta allt hafa áhrif á möguleika sýrlensku stjórnarandstöðunnar til að ná fram markmiðum sínum."
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira