Tólf ára ekki spurð um fararleyfi Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 23. febrúar 2013 05:00 Flugfélögum ber ekki skylda til að kanna hvort 12 ára börn og eldri megi ferðast ein. fréttablaðið/valli
Flugfélögum ber engin skylda til að kanna hvort börn á aldrinum 12 til 18 ára hafi leyfi forráðamanns til að ferðast ein. Þessi svör fékk norsk móðir hjá Icelandair, SAS og Norwegian. Sautján ára sonur hennar strauk að heiman og enginn vissi hvar hann var fyrr en hann birtist allt í einu á Íslandi, að því er kemur fram í frétt á vef Verdens Gang. Pilturinn hafði keypt sér ferð til Íslands aðra leiðina. Hann hélt frá Rogaland til Gardermoen flugvallar við Ósló á sunnudagskvöld og hélt til um nóttina á flugvellinum. Á mánudagsmorgun fór hann um borð í flugvél til Íslands með farmiðann sem hann hafði keypt á netinu með Visa debetkortinu sínu. Stráksi hafði ákveðið að heimsækja vin sinn á Íslandi. Fjölskyldan á ættingja hér á landi og með aðstoð þeirra fannst pilturinn. Móðirin kveðst ekki skilja hvers vegna ekki sé kannað hvort barn undir 18 ára aldri hafi leyfi til að ferðast aleitt. „Aldurstakmarkið vegna kaupa á tóbaki, bjór og víni er 18 ára og 20 ára vegna kaupa á sterku áfengi. En 12 ára barn getur keypt sér flugmiða og farið úr landi aleitt." Hjá Norwegian fékk hún þau svör að leiki vafi á að barnið sé yngra en 12 ára sé það beðið um að staðfesta að það hafi leyfi til að ferðast án fylgdar. Haft er eftir upplýsingastjóra SAS, Knut Morten Johansen, að það komi fyrir að unglingar séu stöðvaðir gruni starfsmenn að ekki sé allt með felldu. Þá sé haft samband við forráðamenn eða lögregluna á flugvellinum. - ibs
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sjá meira