Erlent

Stjórn kolfallin í fylgiskönnun

Þorgils Jónsson skrifar
Jens Stoltenberg
Jens Stoltenberg
Allt stefnir í stjórnarskipti í Noregi eftir þingkosningar í haust, miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar.

Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna, Verkamannaflokksins, Miðjuflokksins og Sósíalíska vinstriflokksins, er einungis 34 prósent. Á meðan eru Hægriflokkurinn og Framfaraflokkurinn með samtals 53 prósent.

Hægriflokkurinn er stærstur með 36% og Verkamannaflokkur Jens Stoltenberg mælist með 26,4%, en Miðjuflokkurinn fellur út af þingi ef fram fer sem horfir þar sem hann er með undir fjögurra prósenta fylgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×