Páfi kveðst hætta vegna hrumleika 12. febrúar 2013 06:00 Benedikt páfi Kardínálarnir sátu sem þrumu lostnir í salnum eftir að páfi hafði tilkynnt um brotthvarf sitt. nordicphotos/AFP
Páfagarður, AP Tíðindin af afsögn Benedikts XVI. páfa komu kaþólsku kirkjunni í opna skjöldu. Flestir nánustu samstarfsmenn hans höfðu ekki gert sér grein fyrir því sem til stóð. „Allir kardínálarnir voru sem þrumu lostnir og litu hver á annan,“ segir Oscar Sanchez, kardínáli frá Mexíkó, sem var viðstaddur þegar Benedikt las upp tilkynningu um afsögn sína. Sumir áttu greinilega erfitt með að skilja tíðindin. Bróðir hans, Georg Ratzinger, segir að páfi hafi verið að velta þessu alvarlega fyrir sér undanfarna mánuði. „Ég hef fullvissað mig um það að vegna aldurs hafi ég ekki lengur nægan styrk til að sinna páfadómi svo fullnægjandi sé,“ sagði Benedikt í yfirlýsingunni, sem hann las upp á fundi með kardínálum í Páfagarði. Hann sagði þær kröfur sem nútíminn gerði til starfsins vera það miklar að til að standa undir þeim þurfi menn að vera bæði líkamlega og andlega vel á sig komnir. Þegar Benedikt var kosinn páfi árið 2005 var hann guðfræðingur og kardínáli í Þýskalandi og hét enn Joseph Ratzinger. Hann var orðinn 78 ára og var farinn að hlakka til þess að setjast í helgan stein. Hann hefur sagt að hann hefði heldur kosið að njóta ævikvöldsins við bóklestur og gönguferðir, frekar en að vera í kastljósi fjölmiðlanna og bera höfuðábyrgð á kaþólsku kirkjunni. Páfatíð Benedikts hefur að nokkru verið stormasöm. Nokkru áður en hann tók við voru kynferðisbrot fjölda kaþólskra presta víða í Bandaríkjunum og Evrópulöndum að komast í hámæli, en það kom í hans hlut að takast á við þessi hneykslismál sem æðsti yfirmaður kirkjunnar. Hann tók sjálfur á móti fjölmörgum fórnarlömbum kynferðisbrotanna og hét því að kaþólska kirkjan myndi standa sig framvegis. Yfirhylmingar með kynferðisbrotum yrðu liðin tíð. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira