Erlent

Milljón dalir til höfuðs Dorner

Antonio Villaraigosa og Charlie Beck Borgarstjórinn í Los Angeles og lögreglustjóri borgarinnar tilkynna um verðlaunaféð.	fréttablaðið/AP
Antonio Villaraigosa og Charlie Beck Borgarstjórinn í Los Angeles og lögreglustjóri borgarinnar tilkynna um verðlaunaféð. fréttablaðið/AP
Bandaríkin, APLögreglan í Bandaríkjunum hefur boðið milljón dali fyrir upplýsingar, sem gætu leitt til handtöku Christophers Dorner.

Dorner er fyrrverandi lögreglumaður í Los Angeles, sem hefur sagt lögreglunni stríð á hendur vegna þess að honum var sagt upp fyrir nokkrum árum.

Hann hefur framið þrjú morð og hótar mörgum morðum í viðbót. Viðamikil leit að honum hefur ekki borið árangur.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×