Njósnað um einstaklinga á samskiptasíðum 11. febrúar 2013 06:00 Edward Campbell, framkvæmdastjóri Raytheon, tók í síðustu viku við orðu úr hendi Bandaríkjaforseta fyrir framlag sitt til tækninýjunga. nordicphotos/AFP
Bandaríska fyrirtækið Raytheon hefur hannað leitarvél sem þefar uppi upplýsingar um einstaklinga á samskiptasíðum á borð við Facebook og Twitter. Fyrirtækið, sem framleiðir vopn og tekur að sér verk á sviði öryggisþjónustu og hernaðar, hefur enn ekki selt neinum þennan hugbúnað. Breska dagblaðið Guardian hefur hins vegar komist yfir myndband sem lýsir því hvernig leitarvélin virkar. Leitarvélin heitir RIOT, sem stendur fyrir Rapid Information Overlay Technology. Með henni er auðveldlega hægt að ná í allar upplýsingar sem einstaklingar hafa sett inn á samskiptasíður sínar. Þannig er hægt að fá býsna skýra heildarmynd af viðkomandi einstaklingi, til dæmis hverja hann umgengst, hvaða áhugamál hann hefur og hvert hann er vanur að ferðast. Allt þetta er hægt að staðsetja á korti með fáeinum músarsmellum og fá upp myndir af viðkomandi, vinum hans og stöðunum sem hann hefur komið til. Í myndbandinu er tekið dæmi af einum starfsmanni fyrirtækisins, sem heitir Nick, og sýnt hve auðvelt er að finna út að miklar líkur séu á því að hitta á hann á tiltekinni líkamsræktarstöð klukkan sex að morgni flesta daga vikunnar.- gb
Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Fleiri fréttir Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Sjá meira