Erlent

Sveppur herjar á kaffiplöntur

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Verkamaður á kaffiplantekru í Hondúras gróðursetur kaffiplöntu.
Verkamaður á kaffiplantekru í Hondúras gróðursetur kaffiplöntu. nordicphotos/AFP
Í vetur hefur ryðsveppur herjað af miklu kappi á kaffiplöntur í Mið-Ameríku með þeim afleiðingum að þriðjungur kaffiuppskerunnar er í hættu. Þar með er lifibrauði fjölda fólks í álfunni í voða stefnt, en um ein og hálf milljón manna starfar við kaffirækt í ríkjum Mið-Ameríku.

Ryðsveppur er kenndur við ryð vegna þess að blöð kaffiplöntunnar verða ryðbrún í staðinn fyrir græn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×