Kerry tekur við af Clinton 30. janúar 2013 00:30 John Kerry
Öldungadeildarþingmaðurinn John Kerry mætti engri mótstöðu í utanríkismálanefnd deildarinnar í gær þegar hún samþykkti einróma að hann yrði næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Búist var við því að síðar í gær myndi öldungadeildin leggja blessun sína yfir að hann taki við af Hillary Clinton, sem hefur verið utanríkisráðherra frá því Barack Obama tók við embætti forseta fyrir fjórum árum. Obama er að gera fleiri mannabreytingar í stjórn sinni þessa dagana, þegar seinna kjörtímabil hans er nýhafið. Hvorki Chuck Hagel, sem Obama ætlar að gera að varnarmálaráðherra, né John Brennan, sem til stendur að verði yfirmaður leyniþjónustunnar CIA, eiga þó von á jafn góðum stuðningi meðal öldungadeildarþingmanna. Báðir hafa sætt töluverðri gagnrýni meðal repúblikana í deildinni. Kerry bauð sig fram til forseta Bandaríkjanna árið 2004 en tapaði fyrir George W. Bush. Kerry sóttist aftur eftir því að verða forsetaefni Demókrataflokksins árið 2008 en Obama hafði betur, varð forsetaefni flokksins og vann sigur í kosningunum.- gb
Mest lesið Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Erlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Innlent Fleiri fréttir Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt „Gríðarstór“ árás á höfuðborgina Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Sjá meira