Stjórnarflokkarnir endurskoða ekki EES Þorgils Jónsson skrifar 30. janúar 2013 01:00 Jens Stoltenberg hefur kveðið niður raddir innan hinna stjórnarflokkanna um endurskoðun EES-samningsins. Nordicphotos/AFP
Norsk stjórnvöld munu ekki krefjast endurskoðunar EES-samningsins á næsta kjörtímabili haldi núverandi stjórnarmynstur áfram eftir kosningar í haust. Þetta segja forsvarsmenn stjórnarflokkanna þriggja, Verkamannaflokksins, Sósíalíska vinstriflokksins og Miðjuflokksins, rauðgræna samstarfsins svokallaða. Málið hefur verið í umræðunni síðasta árið, en komst í hámæli undir lok síðustu viku þegar Martin Kolberg, þingmaður Verkamannaflokksins, sakaði hina tvo stjórnarflokkana um að grafa undan stjórnarsamstarfinu með því að ala á óvissu um framtíð EES-samningsins. Enn harðnaði svo umræðan um helgina þegar formaður norska alþýðusambandsins lýsti því yfir í ræðu að samninginn skyldi endurskoða og vinnumarkaðsmál tekin þar út. Jens Stoltenberg forsætisráðherra sagði að endurskoðun kæmi ekki til greina. „EES-samningurinn er einn af grundvöllum stjórnarsamstarfsins og það má ekki ríkja nein óvissa um það. Þess vegna verður ekki farið út í endurskoðun því að það getur skapað óvissu um samninginn, sem er mikilvægur fyrir Noreg og hefur legið til grundvallar frá upphafi þessa samstarfs." Í kjölfarið lýstu forsvarsmenn hinna flokkanna því yfir að endurskoðun væri ekki til umræðu á næsta kjörtímabili, þar sem rauð-græna samstarfið væri í húfi. Sumir stjórnarandstöðuflokkanna þrýsta á um endurskoðun, sem og ungliðahreyfingar Miðflokksins og Sósíalíska vinstri flokksins, sem lýstu yfir óánægju með óbilgirni Stoltenbergs.
Mest lesið Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Erlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Innlent „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ Erlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt „Gríðarstór“ árás á höfuðborgina Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríkjamenn gera loftárásir á Írani Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Sjá meira