Lögðu sér lík til munns í hungursneyð Svavar Hávarðsson skrifar 2. maí 2013 09:00 Aðeins 60 af um 300 voru á lífi í Jamestown þegar hjálp barst. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Beinafundur við Jamestown í Virginíu í Bandaríkjunum er talinn sönnun þess að breskir landnemar neyddust til að leggja sér mannakjöt til munns í mikilli hungursneyð veturinn 1609 til 1610. Fréttastofa BBC greinir frá því að vísindamenn við Smithsonian-safnið í Washington DC telji nær útilokað að för í beinagrind stúlkubarns séu tilkomin með öðrum hætti en þeim þegar lík er hlutað í sundur og kjöt þess fjarlægt. Vísindamennirnir telja að stúlkan hafi brauðfætt hungraða landnema í Jamestown í mikilli hungursneyð sem þar var í heilan vetur, en tugir, jafnvel hundruð manna, létust þá úr hungri. Ekki er þó vitað hvernig dauða stúlkunnar bar að en bein hennar fundust við fornleifauppgröft á staðnum í fyrra. Sannað er hins vegar að stúlkan var frá Bretlandseyjum. Veturinn sem um ræðir, frá 1609 til 1610, er alræmdur í bandarískri sögu. Oft er vitnað til hans sem hluta eins versta tíma í landnámssögu Norður-Ameríku. Heimildir greina frá því að glorsoltið fólkið neytti hesta, hunda, katta, rottna og snáka áður en gripið var til örþrifaráða til að komast af. Lengi hefur því verið haldið fram að íbúar Jamestown hafi lagt í mannát, en hversu víðtæk þessi iðja var er ósannað. -
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira