Erlent

Fékk hiksta í beinni

Veðurfréttamaðurinn David Paul á sjónvarpsstöðinni KHOU í Houston í Bandaríkjunum lenti í frekar óþægilegri stöðu á dögunum þegar hann fór yfir veðurspána.

Í næstum því mínútur var Paul með hiksta sem hann gat ómögulega haft stjórn á, eins og eðlilegt er. Hann hélt þó áfram að segja frá veðurspánni og tjáði áhorfendum að hikstinn kæmi iðulega þegar mikil rigning væri í kortunum.

Þetta kostulega myndband má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×