Þúsundir Egypta hunsa útgöngubann Guðsteinn Bjarnason skrifar 30. janúar 2013 01:30 Mótmælendur í Port Saíd létu ekki neyðarlög og útgöngubann stöðva sig. nordicphotos/AFP
Yfirmaður egypska hersins segir að Egyptaland geti riðað til falls linni ekki hinum harkalegu pólitísku átökum sem tröllriðið hafa landinu síðustu daga og vikur. Herinn beið átekta í borgunum Port Saíd og Súes og fylgdist með þúsundum manna mótmæla á götum úti í fyrrakvöld þrátt fyrir neyðarlög og útgöngubann eftir klukkan níu að kvöldi. Í þriðju borginni, Ísmalíu, hélt fólk einnig út á götur að mótmæla og storkaði þar með bæði hernum og stjórn Muhammeds Morsi forseta. Síðustu daga hafa átökin í þessum þremur borgum kostað meira en sextíu manns lífið. Þessi átök hófust fyrir helgi eftir að dómstóll kvað upp dauðadóma yfir 21 manni sem áttu þátt í óeirðum í tengslum við fótboltaleik í Port Saíd snemma á síðasta ári. Þau átök kostuðu 44 menn lífið. Abdel-Fattah el-Sissi, sem er bæði varnarmálaráðherra Egyptalands og æðsti yfirmaður heraflans, segir átökin grafa undan stofnunum ríkisins: „Þetta er alvarlegt mál sem skaðar þjóðaröryggi og framtíð landsins." Jafnt stjórnin sem herinn óttast að mótmælin breiðist út og snúist upp í almenna uppreisn í landinu, enda ríkir víða óánægja með forsetann og störf hans. Andstæðingar Morsis segja hann nota völd sín í þágu íslamista en hunsa kröfur frjálslyndra afla sem voru einn helsti drifkrafturinn í uppreisn almennings gegn Hosni Mubarak, forvera Morsis, fyrir nærri tveimur árum. Samkvæmt nýju stjórnarskránni, sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu í desember þrátt fyrir gagnrýni stjórnarandstæðinga, á undirbúningur að þingkosningum að hefjast seint í næsta mánuði. Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, vekur athygli á því hve mikið mannfall hefur orðið í átökunum síðustu daga. Hún hvetur stjórnvöld til að tryggja að her og lögregla beiti aldrei framar óhóflega miklu ofbeldi gagnvart mótmælendum. Ekki aðeins brjóti slíkt gegn lögum heldur sé hætt við því að ofbeldi af hálfu lögreglu og hers geri ástandið enn illviðráðanlegra.
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Fleiri fréttir Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Sjá meira