Berlusconi lofar Ítölum gulli og grænum skógum 5. febrúar 2013 05:59
Silvio Berlusconi er byrjaður að lofa Ítölum gulli og grænum skógum ef þeir bara kjósa hann að nýju til valda í landinu. Þingkosningar eru framundan á Ítalíu seinna í þessum mánuði. Berlusconi gefur kost á sér þrátt fyrir að hafa hrökklast með skömm úr embætti forsætisráðherra landsins fyrir hálfu öðru ári síðan. Hann skildi efnahag Ítalíu eftir í rjúkandi rústum. Talið er að framboð hans nú sé eingöngu gert í þeim tilgangi að fá þinghelgi svo hann komist hjá að afplána dóm fyrir kynmök við stúlku undir lögaldri. Dómsins er að vænta eftir kosningarnar. Nýjasta loforð Berlusconi er að afnema fasteignaskatt sem Mario Monti núverandi forsætisráðherra kom á til að reyna að rétta efnahag Ítalíu af og minnka gífurlegan halla á fjárlögum landsins. Til að mæta tekjutapinu ætlar Berlusconi að draga úr útgjöldum til stjórnmálaflokka, hækka skatta á tóbak og lottómiða og skattleggja tekjur Ítala af fjármálastarfsemi þeirra í Sviss. Mario Monti lætur þetta lýðskrum Berlusconi sér í léttu rúmi liggja. Monti segir að Berlusconi hafi aldrei náð að efna eitt einasta kosningaloforð á öllum pólitískum ferli sínum. Monti á von á að ítalskir kjósendur muni hvernig ferill Berlusconi var og hvernig hann endaði undir lok ársins 2011.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira