Transkona íhugar málsókn eftir dvöl í karlaálmu fangelsis Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 18. apríl 2013 16:11 Del Valle var í karlaálmunni í þrjá daga áður en henni var sleppt gegn tryggingagjaldi.
Fangelsisyfirvöld í Georgíufylki Bandaríkjanna sæta nú gagnrýni eftir að transkona frá New York var sett í fangaklefa með körlum. Ashley Del Valle frá New York var handtekin í borginni Savannah fyrir að sýna brjóst sín á almannafæri. Þegar hjúkrunarfræðingur skoðaði kynfæri Del Valle úrskurðaði hann hana „tæknilega karlkyns“ og var hún í kjölfarið sett í fangageymslur í karlaálmu fangelsisins. Del Valle var í karlaálmunni í þrjá daga áður en henni var sleppt gegn tryggingagjaldi. Í samtali við sjónvarpsstöðina WSAV segir hún að sér hafi liðið illa og fangaverðirnir hafi hæðst að sér. „Mér leið bara eins og það væri ekki komið fram við mig eins og manneskju,“ sagði Del Valle, en hún hefur lifað sem kona í tuttugu ár og lét breyta nafni sínu árið 2002. Hún neitar að hafa berað brjóst sín.Mistök að vista hana í karlaálmunni Roy Harris yfirfangavörður segir starfsmenn hafa farið eftir vinnureglum og sett Del Valle í einstaklingsklefa, en segir það hafa verið mistök að setja hana í karlaálmuna. „Ashley er ennþá karlmaður. Ég held hann hafi farið í brjóstaígræðslu, en tæknilega séð er hann ennþá karlkyns og þar stöndum við frammi fyrir vandamáli,“ segir yfirfangavörðurinn, og bætir því við að hefð sé fyrir því að setja transfólk í einangrun. Del Valle íhugar málsókn vegna málsins, og er talin eiga möguleika á að vinna málið í ljósi þess að hún var handtekin fyrir brot sem aðeins kona getur framið, en fangelsuð með körlum. Engin viðurlög eru við því að karlmaður beri brjóst sín í fylkinu.WSAV: News, Weather, and Sports for Savannah, GA
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Sjá meira