Margrét Lára: Við förum bara enn lengra á næsta stórmóti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2013 16:43
Margrét Lára Viðarsdóttir, framherji íslenska kvennalandsliðsins, var eins og hinar í liðinu mjög svekkt eftir 0-4 tap á móti Svíum í átta liða úrslitum Evrópumótsins. „Ef þú hefðir spurt Svíana fyrir leik hver færi uppskriftin af fullkomnum leik þá hefðu þær eflaust sagt að skora eftir þrjár mínútur og svo aftur eftir fimmtán mínútur. Leikurinn þróaðist nákvæmlega eins og þær óskuðu. Það gefur þeim mikið að skora strax á þriðju mínútu fyrir framan sjö þúsund manns. Það var erfitt hjá okkur að koma til baka eftir það," sagði Margrét Lára. „Við ákváðum það að núllstilla okkur aðeins í hálfleik, reyna að vinna seinni hálfleikinn og spila upp á stoltið. Við vildum sýna íslensku þjóðinni að við værum betri en þetta. Við fáum á okkur eitt mark í seinni hálfleiknum og vörðumst ágætlega. Við vorum fyrir vikið ekki að komast næginlega vel upp völlinn. Svíar eru með frábært lið, heimsklassa leikmenn í öllum stöðum. Þær voru bara miklu betri en við í dag," sagði Margrét Lára. „Leikplanið okkar var að halda núllinu og þá hefði tíminn farið að vinna með okkur. Við lendum strax undir og þetta verður rosalega erfitt. Við þurfum strax að færa okkur framan og svona. Leikurinn þróaðist á þá leið sem við vildum alls ekki. Þetta var erfitt allt frá þriðju minútu," sagði Margrét Lára. „Við erum eitt af átta bestu liðum í Evrópu og getum verið virkilega stoltar af því. Það erfitt að sjá það núna því við erum rosalega svekktar og súrar eftir þennan leik. Við getum verið stoltar af okkar frammistöðu, við erum búnar að skrá okkur á spjöld sögunnar. Við verðum súrar og svekktar í dag en svo förum við að líta á það jákvæða og taka það með okkur," segir „Þessi leikur fer í reynslubankann hjá okkur. Við erum í átta liða úrslitum á EM og að spila fyrir framan sjö þúsund brjálaða Svía. Við förum bara enn lengra á næsta stórmóti," sagði Margrét Lára.
Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Argentína - Egyptaland | Messi gegn Salah Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Fleiri fréttir Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Argentína - Egyptaland | Messi gegn Salah Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Aftur til Frakklands eftir sneypuför til Chelsea Túfa látinn fara eftir níu töp í síðustu tíu leikjum Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Kvartar yfir álaginu: Messi gæti spilað fimm leiki á sautján dögum Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Martínez hættur með portúgalska landsliðið Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Kaupa George frá Chelsea FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Sjá meira