Dóra María: Við getum ennþá náð öðru sætinu Óskar Ófeigur Jónsson í Vaxjö skrifar 17. júlí 2013 12:15 Mynd/ÓskarÓ
Dóra María Lárusdóttir og hinar stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu mæta Hollendingum í kvöld í hreinum úrslitaleik um sæti í átta liða úrslitunum á EM í Svíþjóð. „Það er mjög gaman að fá úrslitaleik. Það er ákveðin spenna í hópnum en þetta var markmiðið sem við settum okkur í upphafi og það er gaman að við séum ekki búnar að klúðra því. Þetta er allt öðruvísi en fyrir síðasta leikinn okkar á EM fyrir fjórum árum og miklu skemmtilegra," segir Dóra María. Hollenska liðið er eina liðið í keppninni sem hefur ekki náð að skora en liðið gerði markalaust jafntefli við Þýskaland og tapið 0-1 á móti Noregi. „Það kemur pínulítið á óvart að þær skuli ekki vera búnar að skora því þær eru með mjög sterka framlínu og eru bæði hraðara og teknískar. Það er lykilatriði fyrir okkur að halda hreinu en svo þurfum við líka að skora líka," segir Dóra María. „Við ætlum að liggja aðeins til baka til að byrja með og nýta okkur það þegar þær færa sig framar á völlinn og finna opnu svæðin," segir Dóra María. „Ég horfi kannski til þess að fara framar á völlinn en ég held að Sara og Dagný séu báðar klárar. Það verður kannski að koma í ljós á æfingu en ég held að það sé verra með Katrínu," segir Dóra María. En undirbýr hún sig öðruvísi fyrir að spila bakvörð eða á miðjunni. „Þetta eru ólíkar stöður og ég er meira að pæla í því hvernig andstæðingurinn spilar þegar ég er í bakverðinum. Þá lendi ég oftar í stöðunni einn á einn og þá er gott að vita á hvorn fótinn hún vill spila og hvort hún vilji stinga sig á bak við þig eða eitthvað svoleiðis," segir Dóra María en hvað þá með að skipta í miðjum leik? „Það var kannski erfitt að skipta í svona leik eins og á móti Þýskalandi en yfirleitt finnst mér ekkert erfitt að vera að skipta um stöður. Mér fannst bara gaman að fá að kíkja á miðjuna í síðasta leik en auðvitað vorum við að verjast og ég gat lítið sótt," segir Dóra María. „Þær eru með mjög sterka leikmenn og þar með talið er öll framlínan. Ég á von á því að þær reyni að nýta sér það í þessum leik. Við getum alveg stoppað þær því þær eru engar ofurhetjur. Ég sá ekki síðasta leik en sá restina á móti Þýskalandi. Þær voru að klúðra illa sínum færum og eru örugglega með lítið sjálfstraust," segir Dóra María. „Þetta gæti farið út markatöluna líka þannig að það er spurning hvort að við þurfum að vera meðvitaðar um það. Hinn leikurinn er spilaður á sama tíma og við getum ennþá náð öðru sætinu. Það væri toppurinn að ná því," sagði Dóra María.
Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Lygilegur viðsnúningur Argentínu Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Víkingur - Györ | Ungversku meistararnir mæta í Víkina Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Fleiri fréttir Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Sviss - Kólumbía | Síðasti farseðilinn í átta liða úrslit Víkingur - Györ | Ungversku meistararnir mæta í Víkina Lygilegur viðsnúningur Argentínu Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Aftur til Frakklands eftir sneypuför til Chelsea Túfa látinn fara eftir níu töp í síðustu tíu leikjum Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Kvartar yfir álaginu: Messi gæti spilað fimm leiki á sautján dögum Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Martínez hættur með portúgalska landsliðið Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Sjá meira