Fótbolti

Það helsta um andstæðing Íslands

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lorik Cana fer yfir málin með dómaranum Kevin Friend í ensku úrvalsdeildinni.
Lorik Cana fer yfir málin með dómaranum Kevin Friend í ensku úrvalsdeildinni. Nordicphotos/Getty
Albanir eru mættir til Íslands enda stórleikur fyrirhugaður á Laugardalsvelli í kvöld. Ekki skildi reikna með markaveislu.

Albanir hafa skorað sjö mörk og fengið sjö á sig í leikjum sínum sjö í undankeppninni. Edgar Cani, 24 ára framherji Carpi á Ítalíu, er markahæstur með tvö mörk. Cani skoraði einmitt í 2-1 sigri Íslands í fyrri leiknum í Tirana. Aðrir leikmenn liðsins hafa skipt hinum mörkunum fimm á milli sín.

Sterkasti leikmaður Albana og sá landsleikjahæsti er líklega miðvörðurinn Lorik Cana. Miðvörðurinn þrítugi hefur leikið 70 sinnum fyrir þjóð sína og borið fyrirliðabandið undanfarin ár.

Cana, sem í dag leikur með Lazio á Ítalíu, var áður á mála hjá Galatasaray í Tyrklandi, Sunderland á Englandi auk Marseille og PSG í Frakklandi. Arsenal sýndi honum áhuga á táningsaldri en vegabréfsvandamál kom í veg fyrir að hann gæti sótt Lundúnafélagið heim. Cana var fyrsti albanski leikmaðurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni þegar hann samdi við Sunderland.

Sex leikmenn albanska landsliðsins eru á mála hjá ítölskum liðum. Aðeins þrír í leikmannahópnum spila með liðum í heimalandi sínu.

Markahæsti leikmaðurinn í hópnum er Hamdi Salihi, framherji Jiangsu Sainty í Kína. Sá hefur skorað tíu sinnum fyrir þjóð sína en var ekki í byrjunarliðinu í 1-0 tapinu í Slóveníu á föstudag. Hann kom þó inn á snemma í síðari hálfleik.

Albanir hafa aldrei staðið betur í alþjóðlegum fótbolta. Sigrar á Norðmönnum og Slóvenum í undankeppninni lyftu liðinu upp í 37. sæti heimslistans. Í dag sitja þeir í 38. sæti og eiga, líkt og Íslendingar, fínan möguleika á að ná öðru sætinu í riðlinum. Leikurinn í kvöld hefur mikið um það að segja.


Tengdar fréttir

Sterkari liðin mæta þeim veikari

Allar líkur eru á því að takist Íslandi að hafna í 2. sæti E-riðils í undankeppni HM 2014 þá dugi það til þess að koma liðinu í umspil.

Erfiðir leikir gegn Albaníu

Ísland og Albanía hafa fjórum sinnum mæst á knattspyrnuvellinum. Hvort lið hefur unnið tvo sigra.

„Í okkar höndum hvort við förum áfram eða ekki“

Eftir endurkomuna ótrúlegu í Sviss eru Albanir næsti réttur á matseðlinum. Þótt andstæðingurinn sé hærra skrifaður segja strákarnir fullkomlega eðilegt að þjóðin krefjist sigurs enda komist liðið ekki upp með tap.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×