Skipstjóri Costa Concordia kennir undirmanni um strandið Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. september 2013 11:45 Skipstjórinn Francesco Schettino yfirgefur dómssalinn í morgun. Mynd/AP
Francesco Schettino, skipstjóri skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, segir strand skipsins í byrjun síðasta árs undirmanni sínum að kenna. Við réttarhöldin, sem héldu áfram í morgun, sagði Schettino að þegar skipið var farið að nálgast um of strönd eyjunnar Giglio, þá hafi hann skipað undirmanni sínum, sem þá stóð við stýrið, að beygja frá skerinu. Rórmaðurinn hafi brugðist seint við skipuninni og ekki breytt stefnu skipsins í tæka tíð. Schettino segir að menn hafi reynt að gera sig að blóraböggli í málinu. Schettino á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi, verði hann fundinn sekur. Hann hefur áður borið því við að skerið, sem skipið rakst á, hafi ekki verið á siglingakortum. Einnig hefur hann viljað að skipafélagið taki á sig hluta ábyrgðarinnar. Skipið, sem er engin smásmíði, hafði legið á hliðinni á strandstað við strendur Toskanahéraðs á Ítalíu í meira en hálft annað ár þegar björgunarmönnum tókst að rétta það við í síðustu viku. Unnið er að því að draga skipið burt og rífa niður í brotajárn.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira