Lokaballið flutt á spítalann 28. mars 2013 11:54 Katelyn Norman ásamt fjölkskyldu og vinum horfa á kertaljósin fyrir utan sjúkrahúsið.
Hin 14 ára Katelyn Norman greindist með krabbamein í beini í handlegg sínum fyrir tveimur árum. Hún á aðeins nokkra daga eftir ólifaða. Katelyn hefur barist við krabbameinið undanfarin tvö ár og farið í fjölmargar aðgerðir til þess að vinna bug á meininu. Æxlunum hefur hins vegar aðeins fjölgað, krabbameinið borist í lungu og fyrir skömmu tilkynntu læknar að þeir gætu ekkert frekar gert. Baráttunni væri lokið. Þegar þær fréttir bárust vinum og skólafélögum Katelyn í bænum LaFollette í Tennessee-fylki tóku þau sig til og skipulögðu lokaball (e. prom) til heiðurs Katelyn. Þema ballsins var „Katie in the Sky with Diamonds" sem er vísun í samnefnt lag Bítlanna um Lucy. Ballið var hluti af markmiði fjölskyldu og vina Katelyn að fylla síðustu daga hennar á jörðinni af eins mikilli gleði og mögulegt væri. Hafði Katelyn nefnt að eitt af því sem hún vildi gera áður en hún léti lífið væri að upplifa lokaball. Katelyn hlakkaði mikið til ballsins og hafði ætlað að mæta. Kvöldið sjálft komu upp auknir öndunarerfiðleikar hjá táningnum sem varð til þess að hún þurfti að leggjast inn á spítala. Vinir hennar og fjölskylda dóu þó ekki ráðalaus. Ballið var einfaldlega flutt á spítalann. Þar fékk hún blómvönd frá drengnum sem hún hafði ætlað með á ballið og borða þar sem hún var lýst drottning lokaballsins. Spítalinn var fallega skreyttur ljósum og borðum.Spítalinn var skreyttur borðum og ljósum.Átti upphaflega að lýsa upp veg Katelyn frá heimili hennar í skólann þar sem ballið skyldi fara fram. Þegar ljóst var að Katelyn kæmist ekki á ballið tóku vinnir hennar til sinna ráða. Var mynduð röð fyrir utan spítalann sem var á annan kílómetra að lengd. Var kveikt á kertum og höfðu viðstaddir á orði að um yndislega stund hefði verið að ræða. Norman hafði sjálf hringt í skipuleggjendur ballsins og sagt þeim að ballið yrði að fara fram þótt hún kæmist ekki. "Þannig er hún. Það er ekki annað hægt en að smitast af lífsorku hennar," sagði einn skipuleggjendanna. Hér fyrir neðan má horfa á tilfinningaþrungið myndband þar sem saga Katelyn Norman er rakin.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira