28 marka strákur sigraðist á líkindunum 28. mars 2013 19:59
Georg King var rúmlega tvisvar sinnum þyngri en meðalbarnið þegar hann kom í heiminn fyrir sex vikum. Stærðarinnar vegna reyndist þrautinni þyngri að koma Georg í heiminn. Axlabreiddin varð til þess að erfitt var að ná honum út og töldu læknar um 10 prósent líkur á að hann myndi lifa fæðinguna af. Í dag gengur hann í fötum ætluðum sex mánaða gömlum börnum, er átta kg að þyngd og hefur það fínt. Foreldrum hans var þó allt annað en skemmt í fæðingunni því Georg andaði ekki í fimm mínútur. Var talið að drengurinn myndi líkast til hljóta heilaskaða af völdum súrefnisskorts en annað hefur sem betur fer komið á daginn. Hann dvaldi á barnaspítala St Michaels spítala í Bristol en fékk að fara heim að fimm viknum liðnum. "Okkur var sagt að allt væri eðlilegt þar til hann kom út. Við fylltumst ótta þegar axlir hans festust og starfsfólkið tilkynnti okkur að hann myndi líkast til ekki lifa fæðinguna af," segir 21 árs gömul móðirin. Taldi hún að um tuttugu læknar hefðu verið viðstaddir fæðinguna. "En nú erum við komin heim og byrjuð að venjast fjölskyldulífinu saman. Allir segja að stærðin muni jafna sig út á endanum og vöxtur hans verði eðlilegur." Samkvæmt frétt BBC hefur aðeins einu sinni fæðst þyngra barn á Bretlandseyjum í hefðbundinni fæðingu. Umrætt barn var 30 merkur að þyngd.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Fleiri fréttir „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Sjá meira