"Nú er loksins að birta til" 10. maí 2013 23:52
Aesha Mohammadzai vakti heimsathygli árið 2010 þegar hún sat fyrir á forsíðu tímaritsins Time eftir að eiginmaður hennar skar af henni nefið. Árásinni varð hún fyrir í heimalandi sínu, Afganistan, en eiginmaður hennar hafði beitt hana ofbeldi frá því faðir hennar gaf honum hana þegar hún var aðeins tólf ára gömul. Það gerði faðir Aesha til að greiða manninum, talíbönskum hermanni, skuld. Að lokum flúði Aesha frá manninum en þegar hún náðist var henni refsað grimmilega. Eiginmaður hennar og tengdaforeldrar skáru af henni nef og eyru, og skildu hana eftir úti í skógi. Hún náði naumlega að skríða heim til afa síns sem kom henni undir læknishendur. Flogið var með Aesha til Bandaríkjanna árið 2010, og nú býr hún hjá fjölskyldu í Maryland. Aesha hefur farið í fjölmargar lýtaaðgerðir á nefi, sem hafa tekið allt að átta klukkustundir. Læknum hefur tekist að móta nef úr umframvef frá enni hennar og framhandlegg. Aðeins nokkrar minniháttar aðgerðir eru eftir, og að þeim loknum munu læknar freista þess að búa til eyru. Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN fjallar um Aesha í dag. Hún segist hafa þjáðst mikið um ævina en nú sé loksins að birta til. Myndbrot úr umfjölluninni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira