Fótbolti

Deschamps: Verðum að brjóta Úkraínu niður

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Frakkland er í erfiðri stöðu
Frakkland er í erfiðri stöðu MYND/NORDIC PHOTOS/AP
Didier Deschamps þjálfari franska landsliðsins í fótbolta telur að lið hans geti brotið Úkraínu á bak aftur í seinni leik þjóðanna í umspili um laust sæti á heimsmeistaramótinu í  fótbolta. Úkraína vann fyrri leikinn á heimavelli 2-0.

Seinni leikurinn verður leikinn á Stade de France í París á þriðjudagskvöldið. Deschamps er meðvitaður um að lið hans þarf að pressa, leika hraðan bolta og berjast sem aldrei fyrr til að vinna á sterku liði Úkraínu.

„Við þurfum að stilla hugarfar leikmanna rétt klukkutímana fyrir leikinn,“ sagði hinn 45 ára gamli þjálfari Frakklands á fjölmiðlafundi.

„Við þurfum leika mjög vel, setja á þá pressu og vera meðvitaðir um þeir koma ekki hingað bara til að verjast.

„Við eigum ekki að henda okkur í tæklingar heldur neyða þá til að hlaupa svo hægt sé að brjóta þá á bak aftur seint í leiknum.

„Við þurfum að pressa á þá og leika af krafti frá byrjun. Við þurfum að leika hraðan fótbolta frá upphafi til enda,“ sagði Deschamps




Fleiri fréttir

Sjá meira


×