Borgarstjórinn í London vill nýjan flugvöll á eyju úti fyrir minni Thamesár Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. nóvember 2013 09:30 Íbúar í London hafa nefnt áformin eftir borgarstjóranum, Boris Johnson. Mynd/Testrad
Verði hugmyndir Boris Johnsons, borgarstjóra í London, að veruleika verður ný eyja gerð úti fyrir mynni Thamesár. Á eyjunni verður nýr flugvöllur, sem tæki við af Heathrow-flugvelli sem mikilvægasti alþjóðaflugvöllur Bretlands. Undirbúningur er þegar kominn nokkuð á veg og hefur fyrirtækið Testrad, sem sér um undirbúninginn, nú þegar kynnt fyrstu drög að hönnun og útfærslu flugvallarins. Íbúar í London hafa nefnt áformin eftir borgarstjóranum og kalla eyjuna Boris-eyju. Í plöggum frá Testrad og í opinberum skjölum er hins vegar talað um Brittania-flugvöllinn, sem á að kosta 47,3 milljarða punda, eða jafnvirði rúmlega 9.000 milljarða króna. Hugmyndin er sú að ný flugvallarbygging verði reist við norðurbakka Thamesárósa, en nýjar hraðlestir flytji farþega til og frá London. Flugvöllurinn yrði í 80 kílómetra fjarlægð frá Charing Cross lestarstöðinni í London, en hraðlestirnar eiga að geta flutt fólk þessa vegalengd á 30 til 40 mínútum. Reiknað er með að flugvöllurinn geti orðið að veruleika innan sjö ára, en á næstu árum er því spáð að flugfarþegum muni fjölga verulega. Howard Davies, formaður flugvallanefndar bresku stjórnarinnar, skýrði nýlega frá því að á næstu árum verði að finna lausn á þessu og fjölga flugbrautum í suðausturhluta Bretlands. Töluverð umræða hefur verið um nauðsyn þess að stækka Heathrow-flugvöll til að anna þessari væntanlegu auknu eftirspurn. Johnson borgarstjóri segir marga kosti við að gera nýjan flugvöll á tilbúinni eyju úti fyrir ströndinni. Þar með losni íbúar í grennd flugvalla bæði við linnulítinn hávaða og hættuna á flugslysum, sem fylgir flugumferð yfir íbúðarhúsum þeirra. Auk þess losni fólk við það rask sem fylgir nýjum flugbrautum á landi, því þær yrði vart hægt að leggja nema með því að rífa mikið af byggingum á því landsvæði, sem færi undir framkvæmdirnar. Líklegt þykir að Heathrow-flugvelli verði lokað fari svo að nýja flugvallareyjan verði að veruleika.
Mest lesið Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Gátu loks yfirheyrt konuna Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Innlent Fleiri fréttir Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Rekja rafmagnsleysið á Íberíuskaga til mistaka orkufyrirtækja Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Tugir drepnir á meðan þau biðu eftir matarskammti Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Færeyingar vilja fullveldi Trump fundar með þjóðaröryggisráði Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Ætlaði að myrða tvo þingmenn til viðbótar Sjá meira