Erlent

Ætluðu að drepa lögreglustjórann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bílasprengja varð þremur mönnum að bana í Bagdad en tilræðismennirnir ætluðu að ráða Salah Al-Din Province, lögreglustjóra í Írak, af dögum.

Lögregluyfirvöld sögðu í fjölmiðlum ytra að lögreglustjórinn hafi verið að aka framhjá lögreglustöð í höfuðborginni þegar sprengingin átti sér stað.

Þrír létust og níu eru særðir en lögreglustjórinn sjálfur slapp og er lítillega særður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×