Myrti mann sem hann taldi vera barnaníðing Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 28. nóvember 2013 16:39 Frá vinstri: Lee James, Stephen Norley, og Bijan Ebrahimi.
24 ára breskur karlmaður hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða mann sem hann taldi vera barnaníðing. Lee James myrti Bijan Ebrahimi í borginni Bristol í júlí og kveikti í líki hans. Ebrahimi, fertugur maður frá Íran, lést af völdum höfuðáverka eftir að James traðkaði ítrekað á höfði hans. „Ég sparkaði í höfuð hans eins og fótbolta, ég var svo reiður,“ sagði James við lögreglu. Hann mun þurfa að sitja í að minnsta kosti 18 ár í fangelsi, en Stephen Norley var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að aðstoða James við að losa sig við líkið. Morðið var framið þremur dögum eftir að Ebrahimi var handtekinn vegna kvartana um að hann hefði tekið ljósmyndir af börnum í nágrenni við heimili hans. Lögreglumenn rannsökuðu myndavél hans, myndbönd og tölvu, en fundu ekkert saknæmt og því var Ebrahimi látinn laus án ákæru. James hafði haft í hótunum við Ebrahimi fyrir morðið, sem hafði tilkynnt hótanirnar til lögreglu, en í ljós kom að þeim tilkynningum hafði ekki verið sinnt. Þrír lögreglumenn eru nú til rannsóknar vegna gruns um vanrækslu í starfi.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira