Tvíburasystur fæddust með 87 daga millibili Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 28. nóvember 2013 23:37 mynd/AFP
Tvíburasysturnar Amy og Katie frá Írlandi fæddust með 87 daga millibili. Þetta hefur verið skráð í heimsmetabók Guinness en þetta er lengsti tími sem hefur liðið milli tvíbura sem skráð hefur verið. Þetta kemur fram á Gizmodo. Amy fæddist 1. júní á síðasta ári og Katie 27. ágúst. Þar með var slegið nærri 20 ára gamalt met en tvíburarnir Hanna og Eric Lynn fæddust í Bandaríkjunum með 84 daga millibilið árin 1995 og 1996. Maria Jones-Elliot, móðir Amy og Katie, var aðeins gengin 23 vikur með stúlkurnar þegar hún fékk hríðir. Hún varð að sjálfsögðu afar áhyggjufull. En læknar telja almennt að ekki sé hægt að bjarga börnum sem fæðast fyrir 24 viku meðgöngu. Það er kraftaverk að börn sem fæðast jafn snemma og Amy lifi. Það er jafnvel enn meira kraftaverk að tvíburi sem fæðist svona snemma lifi. Þegar Amy litla var komin í heiminn hættu samdráttarverkir hjá móður hennar og Katie var enn eftir inni. Slíkt getur verið hættulegt barninu sem eftir verður þar sem hætta er á sýkingu í legið. Því reyndu læknar að framkalla fæðinguna en þegar það tókst ekki ákváðu foreldrarnir að leyfa náttúrunni að sjá um þetta. Báðar stúlkurnar eru heilbrigðar í dag þrátt fyrir erfiðleika við fæðingu og eftir fæðingu. Amy þurfti til dæmis að vera lengur á sjúkrahúsinu en yngri systir hennar vegna ýmissa kvilla sem hrjáðu hana vegna þess hve lítil hún var við fæðingu. Í sömu frétt kemur fram að stysti tími sem liðið hefur á milli fæðinga, og þá er ekki tekið með þegar börn eru tekin með keisara, er tvær mínútur. Til eru óstaðfest gögn um að lengri tími en 87 dagar hafi liðið milli fæðinga og það lengsta sem vitað er um, en ekki er staðfest, eru 97 dagar.
Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Erlent Fleiri fréttir Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Sjá meira