Jákvæð teikn á lofti með færri dauðadómum í fyrra Þorgils Jónsson skrifar 15. apríl 2013 16:00 Mótmælandi heldur á lofti veggspjaldi þar sem krafist er afnámi dauðarefsingar í Hvíta Rússlandi. Setumótmæli fóru fram fyrir helgi í sendiráði landsins í Moskvu. Mynd/AP
Þrátt fyrir að heildarfjöldi dauðarefsinga á heimsvísu sé lítt breyttur og fjöldi ríkja sem beiti dauðarefsingum sé sá sami, má greina jákvæða þróun í þessum málaflokki milli áranna 2011 og 2012. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International. Alls er vitað til þess að 682 einstaklingar hafi verið teknir af lífi í 21 ríki í fyrra, sem er tveimur meira en árið áður. Það sem skekkir þá mynd er að nokkur ríki sem hafa ekki tekið fólk af lífi um hríð, meðal annars Japan, Indland og Pakistan, framkvæmdu aftökur í fyrra. Það sem helst er til vitnis um jákvæða þróun í þessum málum er að nokkuð færri dauðadómar voru kveðnir upp í fyrra en árið áður, 1.722 samanborið við 1.923, og í færri ríkjum en áður, úr 63 í 58. Samkvæmt staðfestum tölum biðu þó enn 23.386 einstaklingar aftöku eftir dauðadóm í árslok 2012. Þá afnam Lettland dauðarefsingar úr lögum og verður þar með 97. ríkið til að gera slíkt, en alls hafa 140 ríki afnumið dauðarefsingar eða hætt að beita þeim. Hvíta-Rússland er eina Evrópuríkið þar sem dauðarefsingar tíðkast enn. Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir staðfestar tölur um aftökur í Kína gerir Amnesty fastlega ráð fyrir því að þar í landi skipti aftökur hundruðum árlega. Annað sætið á þessum lista skipar Íran með 314 aftökur hið minnsta, Írak er í þriðja sæti með 129 aftökur, sem er tvöföldun frá fyrra ári, og Sádi-Arabía er í fjórða sæti með 79 aftökur. Bandaríkin eru í fimmta sæti með 43 aftökur og eina ríkið á vesturhveli þar sem slíkt tíðkast. Þetta er sami fjöldi og var árið áður en aðeins níu ríki Bandaríkjanna tóku fólk af lífi í fyrra, samanborið við þrettán ríki árið áður. Þá afnam Connecticut-ríki dauðarefsingar með lögum í fyrra og varð þar með sautjánda ríkið af fimmtíu til að gera slíkt. Í skýrslu Amnesty segir að fátt bendi til þess að dauðarefsingar leiði til færri morða og annarra alvarlegra afbrota. Þeim sé víða beitt í pólitískum tilgangi meðal annars til skoðanakúgunar, jafnvel fyrir afbrot sem teljast ekki til alvarlegra glæpa, eða glæpa yfirhöfuð, samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Fleiri fréttir Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Sjá meira